Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 14.09.1980, Blaðsíða 4
44 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1980 Frásögn Leifs Miiller af dvöl hans í fangabúð- um nazista og rætt við hann um reynslu hans þar Leifur Muller, verslunar- maður, með heimilistíkina Týru. LjÓHin. Kristján í FANGABÚÐUM NAZISTA: „Veldi nazista byggðist á fengabúðum44 Fallinn félagi Að undanförnu hefur íslenzka sjónvarpið sýnt myndaflokkinn „Helför- ina“ þar sem rifjuð er upp ógnarstjórn nazista í Þýzkalandi undir stjórn Hitlers. Þessi mynd hefur vakið miklar umræður hvarvetna þar scm hún hefur verið sýnd og svo hefur einnig orðið hér á landi. Leifur Muller, verzlunarmaður. er eini núlifandi íslendingurinn sem gist hefur hinar illræmdu fangabúðir nazista. Ilann var handtekinn í Noregi haustið 1942 og var þar í fangahúðum fram á mitt sumar 1943. Þá var hann fluttur til Þýzkalands og settur í hinar illræmdu fangabúðir Sachsenhausen við Oranienburg þar sem hann dvaldist til stríðsloka. Leifur Muller er sonur hjónanna L.II. Múller. kaupmanns í Reykjavík, og Marie Múller. Hann er fæddur og uppalinn hér á landi og hefur verið búsettur hér nær samfleytt siðan stríðinu lauk. Eiginkona Leifs heitir Birna Muller og eiga þau fimm börn. þrjár dætur og tvo syni. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við Leif á heimili hans að Laugalæk 42 og byrjaði hann á því að rifja upp endurminningar sínar frá dvöl sinni í fangabúðum nazista á árunum 1942 til 1945. „Ég lenti í þessu fyrir hálfgerða slysni og var í fangahúðum Þjóðverja í tæplega þrjú ár. án þess að hafa neitt til sakar unnið,“ sagði Leifur. „Ég var við verzlunarnám í Noregi þegar stríðið hófst og þegar sýnt var að styrjöldin myndi dragast á langinn, ákvað ég að reyna að komast heim til íslands. Ég sótti því um fararleyfi til Svíþjóðar, undir því yfirskyni að ég ætlaði á skóla þar. en þaðan ætlaði ég að fara heim um England. En það fór á annan veg. Handtekinn Dag nokkurn sumarið 1942 komu tveir óeinkennisklaeddir menn heim til mín. Þeir sögðust vera frá útlendingaeftirlitinu og óskuðu eftir að ég kæmi með þeim niður á skrifstofu til að ganga endanlea frá fararleyfi mínu til Svíþjóðar. En ferðinni var alls ekki heitið þangað heldur fóru þeir með mig rakleiðs til Victoria Terrasse, — aðalstöðva Gestapo, hinnar illræmdu leynilögreglu nazista. Gestapo hafði greinilega kynnt sér öll mín mál og áleit að áformuð skólavist mín í Svíþjóð væri fyrirsláttur einn og hefði ég raunverulega í hyggju að komast til íslands um England eins og margir höfðu gert fram að þessu. Þó að ég hefði ýmis plögg, sem sönnuðu að ég hefði sótt um skólavist í Svþíþjóð, var ekki hlustað á andmæli mín, — nazist- ar þurftu ekki sannana við til að fangelsa fólk. í fangelsi Það var farið með mig til Möllergaten 19 sem þá var aðal- gæzlufangelsi nazista í Noregi. Þar lenti ég í klefa með þrem öðrum og vorum við þar í einangr- un í þrjá mánuði. Það var séð til þess að við gætum ekkert haft okkur til dægrastyttingar og reyndar allt gert til að vistin yrði hin versta. í þessari ömurlegu vistarveru lærði ég þó að tefla. Taflborðið var gert á salernis- pappír með tannkremi og tafl- mennirnir á sama hátt. Slik iðja var auðvitað brot á fangelsisregl- unum, — þó við færum mjög laumulega með þennan dýrgrip okkar var taflið að lokum gert upptækt og lá við að við yrðum látnir sæta refsingu fyrir svo glæpsamlegt athæfi. En þrátt fyrir nagandi óvissu og hungur var það kuldinn sem verst fór með okkur, því þótt það væri hávetur var enginn upphitun í fangelsinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.