Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 08.03.1980, Blaðsíða 41
\ MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1980 41 + Sem kunnugt er fara nú fram vestur í Bandaríkjunum forkosningar forsetakosninganna þar á næsta hausti. — Á þessari mynd eru húsbændaefni í Hvíta húsinu, hjónin Ronald Reagan forsetaefni og Nancy Davis kona hans. Þau giftust árið 1952. Ronald er fyrrum kvikmyndaleikari og ríkisstjóri Kaliforníurik- is, til ársins 1972. — Hann er nú formaður í félagsskap ríkisstjóra, sem fylgja repúblikanaflokknum að máli. — Reagan er nýlega orðinn 69 ára. — Og þessi fréttamynd af þeim hjónum er tekin er þau fagna sigri hans í forkosningunum í New Hampshirefylki. + Hinn nýi þáttur í bankastarfseminni vestur í Bandaríkjun- um, stofnun sæðisbank- ans, hefur vakið umtal um víða veröld, sem engan þarf í sjálfu sér að undra. Á þessari mynd er stofnandi bankans. Hann er mik- ill auðjöfur og iðju- höldur, Robert K. Gra- ham að nafni. Þessi mynd er tekin af honum á blaðamannafundinum í heimabæ hans í Kali- forníu, Escondido, er hann sagði írá sæðis- bankanum og hlutverki hans. — Hlutverk bank- ans er ekki að skapa herraþjóð, heldur að fjölga afkomendum mestu snillinga vorra á sviði vísindanna, með sæðisframlagi Nóbels- verðlauna-manna, sagði Graham sæðisbankaeig- andi. + Þessi mynd er frá hinum merka kirkjusöguviðburöi í Grænlandi er vigsla Grænlandsbiskups fór fram. Þessi mynd er af prósessiu biskupa og klerka er þeir gengu, i hægri snjókomu, til Hans Egede kirkjunnar í Nuuk — Godthaab, þar sem vigsluathöfnin fór fram. Fremst til hægri er íslands biskup dr. Sigurbjörn Einarsson. Ungi hempuklæddi presturinn i hvita messuserknum, að baki honum er biskupsefnið sjálft, Jens Chr. Chemnitz. Við hlið hans gengur Eyvind Vilhelm Færeyjabiskup. Til sölu þessl glæsilegi Skyhawk árgerð 1979 búin fullkomnum King silver crown blindflugstækjum. 2 kx 175B TSO Nav Com og glide slope. KMA 20 audio panel og markers. Kt 76A Transponder. Kr 86 ADF. Kn 62A TSO digital DME. Encoding altimeter. Tveir hæöamælar. Strope Ijós og margt fleira. Get ennfremur útvegaö fjölda geröa nýrra og notaöra flugvéla á hagkvæmu veröi. Uppl. gefur Jóhannes Georgsson í síma 51965. Nýjung í starfsemi ÍSAGA H/F Við getum nú boöið gas-, súr- og argonhylki til leigu. Athugið breytt símanúmer á skrifstofu, 85777. ÍSAGA H/F BREIÐHÖFÐA 11 Vinnuvélar til sölu Clark-lyftari, 3ja tonna ’63, benzíndr. m. vökvastýri. Clark-lyftari, 3ja tonna ’59 bensíndrifinn. Ferguson 185 dráttarvél, ’72 3300 vinnust. Taarup 2100 saxsláttuvél, meö þyrilsláttuboröi og pick up. Bedford, 6 cyl. dieselvél, 107 h.a. end to end vél. Vökvastýri í Trader '63 vörubifreið, tvöfalt diskakerfi ónotaö. Graskögglaverksmiðjan, Brautarholti, sími 66111. Morgunblaðið óskar efftir blaðburðarfólki Uppl. í síma 35408 Vesturbær: Hávallagata Aöeins 50 eintök. Úthverfi: Heiðargerði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.