Morgunblaðið - 04.03.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.03.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MARZ 1979 15 Alþingi rœddi stofnun fálka- orðunnar á lokuðum fundi — Rœtt við Birgi Thorlacius um sögu fálkaorðunnar „Áður en fálkaorðan var stofnuð ræddi forsætisráð- herra, Jón Magnússon. málið við alþingismenn, á lokuðum fundi árið 1919. í umræðum á Alþingi 1924 kom fram, að á þessum fundi voru tveir al- þingismenn á móti stofnun orðunnar: Pétur Ottesen þingmaður Borgfirðinga og Kristinn Daníelsson þing- maður Gullbringu og Kjósar- sýslu, og aðrir tveir greiddu ekki atkvæði,“ segir Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri í samtali við Mbl„ en Birgir var áður forsetaritari og eftir það formaður orðunefndar og hefur hann safnað saman ýmsum fróðleik um fálkaorð- una og sögu hennar. „Aðalhvatinn að stofnun fálkaorðunnar var fullveldið og konungskoman 1921,“ sagði Birgir. „Danir veittu íslend- ingum sínar orður og með fullveldinu 1918 fannst mönn- um viðeigandi að íslenzk orða yrði stofnuð. Þegar svo Jón Magnússon hafði fengið að vita afstöðu þingmanna var gengið í málið. Birgir Thorlacius Ég tel víst að Jón Sveinbjörns- son konungsritari hafi ráðið miklu um gerð og reglur orð- unnar, en sá, sem teiknaði fálkaorðuna, var prófessor við listaháskólann í Kaupmanna- höfn, Hans Christian Harald Tegner, og auk samráðs við Jón leitaði hann ráða hjá skjaldamerkjasérfræðingi, Paul Bredo Grandjean að nafni. Orðusmiður danska ríkisins, Poul Ulrich Michel- sen, smíðaði svo fálkaorðuna. Kristján konungur tíundi undirritaði konungsbréfið um stofnun hinnar íslenzku fálka- orðu í Reykjavík 3. júlí 1921. Oröumál á Alþingi Strax á Alþingi 1922 flutti Gunnar Sigurðsson, fyrsti þingmaður Rangæinga, tillögu um þá breytingu á fálkaorð- unni að henni yrðu aðeins sæmdir útlendingar og Pétur Ottesen vildi ganga lengra og afnema orðuna með öllu,“ sagði Birgir Thorlacius. „Margt var skrafað um orðuna í þessum umræðum og meðal annars komu fram athuga- semdir um einkunnarorðin í innsigli orðunnar, en á henni stóð „Aldrei að víkja“. Rétt einkunnarorð Jóns Sigurðs- sonar forseta voru hins vegar „Eigi víkja“. Áletruninni var svo breytt síðar. Þær breyt- ingar voru gerðar á orðunni að kórónan var felld brott við lýðveldisstofnunina 1944 og var sú útlitsbreyting gerð eftir teikningu Baldvins Björnsson- ar, gullsmiðs. En víkjum aftur að umræð- unum á Álþingi 1924. Sigurður Eggerz hafði tekið við for- sætisráðherraembætti og í umræðunum vakti hann at- hygli á því að á einkafundi alþingismanna hefði stofnun orðunnar verið samþykkt með allmiklum meirihluta og kvaðst hann telja það tóman hringlandahátt að ætla nú að afnema orðuna auk þess smekkleysis, sem það væri gagnvart þeim, sem fengið hefðu orðu. Magnús Guðmundsson sagði, að á þingmannafundin- um hefðu aðeins tveir greitt atkvæði gegn stofnun orðunn- ar og benti á að Alþingi hefði Stig fálkaorðunnar voru upphaflega þrjú. en eru nú íimm. Efst Band stórkrossriddara. Keðja stórmeistara. Neðst: Stjarna stórkrossriddara. Hægra megin: Stórriddarakross með stjörnu. Vinstra megin: Riddarakross og neðan við hann stórriddarakross. sjálft valið menn í orðunefnd, en slíkt hefði Alþingi talið heppilegra til að koma í veg fyrir að stjórnin notaði orðuna til að afla sér fylgismanna! Sveinn Ólafsson í Firði bar svo fram frávísunartillögu, sem var felld með 24 atkvæð- um gegn 17. Afnámstillaga Péturs Ottesen var síðan felld með 29 atkvæðum gegn 12 og loks var breytingartillaga Gunnars Sigurðssonar felld með 27 atkvæðum gegn 14. Orðan ónýttur skattstofn í umræðunum á Alþingi 1922 komu fram raddir um að skattleggja orðuna," segir Birgir Thorlacius. „Og á þingi 1924 mælti Tryggvi Þórhalls- son fyrir tillögu fjárveitinga- nefndar um að skora á ríkis- stjórnina að undirbúa löggjöf um skatt af íslenzkum heiðursmerkjum. Kom fram í máli Tryggva að SJÁ NÆSTU SÍÐU Kjarvals-orðan í Listasafninu EIN ER sú fálkaorða, sem aldrei kom í hendur viðtak- anda, en hefur verið geymd á Listasafni íslands með því for- orði að henni þurfi ekki að skila aftur. Þetta er stórkross Jóhannesar Kjarvals, sem hann var sæmdur í tilefni áttræðisaf- mælis síns 15. október 1965. Gylfi Þ. Gíslason þáverandi menntamálaráðherra beitti sér fyrir því, að Kjarval fengi orð- una, sem ekki var álitamál, en hins vegar gekk illa að fá lista- manninn til að þiggja hana. Féllst Kjarval loks á það fyrir orð Gylfa. Afhendingin skyldi fara fram í Ráðherrabústaðnum við málsverð og var boðið þang- að gestum. Bjarni Benediktsson þáverandi forsætisráðherra skyldi sem talsmaður handhafa forsetavaldsins afhenda Kjarval orðuna, en í ræðu Bjarna miðri skipti Kjarval af einhverjum ástæðum um skoðun og afneit- aði orðunni. Hafði hann á orði, að fálkaorðan hefði slökkt lista- manninn í ýmsum samtíð- armönnum sínum, nefndi ýmsa á nafn og kvaðst ekki vilja verða slíkum örlögum að bráð. Varð nú mikið uppistand í Ráðherrabústaðnum og fóru þeir Bjarni Benediktsson og Jóhannes Kjarval ræðir við handhafa forsetavaldsins í Ráðherra- bústaðnum og styður fingrum á orðuöskjuna. Næst honum situr Bjarni Benediktsson forsa'tisráðherra. þá Birgir Finnsson forseti Sameinaðs Alþingis. og lengst til hægri stendur dr. Þórður Eyjólfsson forseti Hæstaréttar. Ljósm. Mbl: Ól.K.M. Selma Jónsdóttir forstöðu- maður Listasafns íslands með fálkaorðu Jóhannesar Kjar- vals, sem geymd er á safninu. Ljósm. Mbl.: Ól. K.M. í miðri afhendingarræðu Bjarna Benediktssonar snerist Kjarval hugur. Ljósm. Mbl: ól.K.M. Gylfi Þ. Gíslason með Kjarval upp á efri hæðina, þar sem þeir reyndu að fá listamanninn til að skipta um skoðun, en hann lét sig hvergi. Skildi svo með þeim, að Kjarval yfirgaf Ráðherrabú- staðinn og samkvæmið leystist upp. Gylfi Þ. Gíslason gafst þó ekki upp heldur færði orðuna í tal við listamanninn skömmu síðar. Kjárval harðneitaði aö fá orð- una inn fyrir sínar dyr, en féllzt á þá málamiðlun að sem virð- ingarvottur við málaralistina skyldi orðan geymd í Listasafni Islands. Tilkynning um orðu- veitinguna var svo birt 11. nvarz 1966. „Ég var erlendis, þegar þessir atburðir gerðust," sagði Selma Jónsdóttir forstöðumaður Lista- safnsins í sanvtali við Mbl. „Ég nvan hins vegar. aö Gylfi Þ. Gíslason tilkynnti nvér, áð orðu- nefnd hefði gefið leyfi sitt til að Listasafnið geynvdi orðu Kjar- vals. Ekki man ég, hver konv nveð hana, en henni fylgdu þau skila- boð, að ekki þyrfti að skila henni aftur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.