Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 22.03.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MARZ 1977 35 Loðnuaflinn orð- inn 516.383 lestir á laugardagskvöld A laugardagskvöld var heildar- loðnuaflinn orðinn 516.383 lestir en á sama tfma I fyrra var aflinn 312.926 lestir, eða meir en 200 þúsund lestum minni. Aflinn í sfðustu viku var 51.195 lestir. Nú hefur 81 skip fengið einhvern afla, en I fyrra höfðu 76 skip fengið afla, að þvf er segir f skýrslu Fiskifélags tslands. Aflahæsta loðnuskipið s.l. laugardagskvöld var Sigurður RE 4 með 20.222 lestir, skipstjórar á Sigurði eru þeir Kristbjörn Arna- son og Haraldur Agústsson. Ann- að aflahæsta skipið var á laugar- dag Guðmundur RE 29 með 17.462 lestir, skipstjórar Páll Guðmundsson og Hrólfur Gunn- arsson, og þriðja aflahæsta skipið var Börkur NK 122 með 17.342 lestir, skipstjórar Magni Kristjánsson og Sigurjón Valdi- marsson. Sem fyrr eru löndunarstaðir loðnu 22 talsins og hefur mestu verið landað í Vestmannaeyjum eða 84.550 lestum, þá kemur Seyðisfjörður með 57.720 lestir og Neskaupsstaður með 43.292 lestir. Meðfylgjandi skýrsla er yfir þá báta er fengið hafa einhvern afla: Sigurður RE 4 20222 (íuðmundur RE 29 17.462 Börkur NK 122 17.342 Gísli Arni RE 375 13.173 Grindvfkingur GK 606 13.822 Pélur Jónsson RE 69 13.632 SÍilan EA 300 13.269 Hilmir SlJ 171 12.333 Rauósey AK 14 12.062 Örn KE 13 12.007 Loftur Baldvinsson EA 24 11.967 Eldborg GK 13 11.646 Fffill GK 54 11.338 Alberl GK 31 10.893 Gullberg VE 292 10.683 Hákon ÞH 250 Arni Sigurður AK 370 Jón Finnsson GK 506 Asberg RE 22 Skarðsvfk SH 205 Huginn VE 55 Helga Guðmundsdóttir BA 77 HrafnGK 12 Þórður Jónasson EA 350 Guðmundur Jónsson GK 475 Bjarni ólafsson AK 70 Kap II VE 4 Óskar Halldórsson RE 157 Helga II RE 373 StapavfkSI 4 Sæbjörg VE 56 Svanur RE 45 Isleifur VE 63 Magnús NK 72 Helga RE 49 Skfrnir AK 16 Húnaröst AR 150 Hilmir KE 7 Keflvfkingur KE 100 Flosi tS 15 Gunnar Jónsson VE 555 Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 Arsæll Sigurðsson GK 320 Freyja RE 38 Náttfari ÞH 60 Arsæll KE 77 Dagfari ÞH 70 Vörður ÞH 4 Vfkurberg GK 1 Sæberg SU 9 Skógey SF 53 Sigurbjörg ÓF 1 Vonin KE 2 FaxiGK 44 Andvari VE 100 Arni Magnússon AR 9 Kári Sölmundarson RE 102 Arnarnes HF 52 Ólafur Magnússon EA 250 Þórkatla II GK 197 BáraGK 24 Geir goði GK 220 Bylgja VE 75 Sóley AR 50 Arnar AR 55 Bergur VE 44 Snæfugl SU 20 Sölvi Bjarnason BA 65 Sandafell GK 82 Bjarnarey VE 501 Hamravfk KE 75 Alsey VE 502 Vfkingur AK 100 Reykjanes GK 50 Steinunn RE 32 Hringur (>K 18 Klængur A.R 2 Asborg (íK 52 Glófaxi VE 300 Suðurey VE 500 Steinunn SF 10 Skipaf jöldi 81 Vikuafli 51195 lestir. Heildarafli 516.383 lestir. 10.054 9.961 9.932 9.727 9.544 9.499 9.499 9.476 9.451 9.421 8.696 8.245 8.020 7.810 7.150 6.977 6.682 6.401 6.196 5.968 5.500 5.322 5.284 5.221 5.205 5.143 5.106 5.056 4.832 4.828 4.714 4.513 4.457 4.446 4.270 4.173 4.058 3.915 3.734 3.513 3.240 3.238 3.237 2.921 2.586 2.577 2.489 2.342 2.297 2.022 2.016 1.882 1.834 1.810 1.804 1.689 1.683 1.644 1.503 1.495 1.278 1.154 1.132 1.054 957 652 Endurflutt stjórnarfrumvarp: Heimildarlög um virkjun Blöndu RlKISSTJÓRNIN hefur endurflutt frumvarp að heimildarlögum um virkjun Blöndu fAustur-Húnavatnssýslu. I 1. grein frumvarpsins segir: „Rfkisstjórninni er heimilt að fela væntanlegri Norðurlands- virkjun eða öðrum aðila að reisa og reka vatnsaflsstöð við Blöndu f Blöndudal f A-IIúnavatnssýslu með allt að 150 MW afli og gjöra nauðsynlegar ráðstafanir á vatnasvæði árinnar til að tryggja rekstur virkjunarinnar. Ennfremur að leggja aðalorkuveitu frá orkuverinu til tengingar við aðalstofnlfnu Norðurlands og meiriháttar iðjuvera. I annarri grein er fjallað um niðurfellingu aðflutningsgjalda og söluskatts af efni, tækjum, vélum og aðalorkuveitum til virkjunarinnar. Niðurfelling nær ekki til vinnuvéla vegna fram- kvæmdanna; þó skal fjármálaráð- herra heimilt að fresta innheimtu gjalda af þeim, eða hluta þeirra, gegn gildum tryggingum. í greinargerð segir: „Eftir þeim rannsóknum og áætlunum, sem þegar hafa verið gerðar er Blönduvirkjun í höpi hag- kvæmustu vatnsaflsvirkjana á íslandi. Hún hefur einnig þann kost að vera utan hinna eldvirku svæða. Stærstu raforkuver lands- ins liggja á eldvirkum svæðum. Dregid í happ- drætti Breið- holtssóknar DREGIÐ hefur verið í happdrætti Breiðholtssafnaðar og reyndist handhafi vinningsnúmers vera Elin Óladóttir, Bjarmalandi 6, Reykjavík og hefur hún vitjað vinningsins sem var Volvo 343. Þvi fylgir áhætta eins og gamlir og nýir atburðir minna á. En um leið og áhættu verður að taka til þess að nýta vatns- og varmaorku landsins, er það mikilvægt að upp rísi raforkuver utan eldvirkni- svæðanna og að því verður að stefna. Þar er Blönduvirkjun fremst í flokki, ein álitlegasta virkjun utan þeirra svæða. — Meðal annarra kosta virkjunar- innar eru mjög góðir miðlunar- möguleikar, sem stuðla að betri nýtingu hennar milli árstíða og auknu rekstraröryggi. Þá er Blönduvirkjun vel staðsett gagn- vart aðalorkuflutningslínu milli Suður- og Norðurlands. Sam- tengingu landshluta fylgir sá kostur að vatnsorkan nýtist betur vegna þess, að rennsli vatnsfalla í mismunandi landshlutum fylgist ekki að. Þannig hafa rannsóknir sýnt að stórt orkuver á Norður- landi, rekið í tengslum við kerfið á Suðvesturlandi, stuðlar að betri rtýtingu vatnsorkunnar í þeim landshluta. .í greinargerð er einnig nákvæm greinargerð um hugsaða virkjunartilhögun og framkvæmdir og henni fylgja ýmiss konar skýringarkort, orku- spá og drög að samkomulagi um bætur vegna virkjunarinnar. Fiskimjölsverksmiðja á Snæfellsnesi: Grundfirðingar og Stykkishólmsbúar vilja reisa verk- smiðjuna sjálfir MJÖG mikill áhugi er nú á Snæ- fellsnesi á að reisa þar fiskimjöls- verksmiðu, en enn er ekki vtiað hvort af framkvæmdum verður. Aðilar í Ólafsvík og á Hellissandi stofnuðu með ser félag um bygg- ingu fiskimjöglsverksmiðju fyrir um það bil tveimur árum, en þeir vilja að ríkið verði aðaleigandi verksmiðjunnar. Þá hafa aðilar í Stykkishólmi og í Grundarfirði stofnað hlutafélagið Jöklamjöl h.f. með það fyrir augum að reisa fiskimjölsverksmiðju í Grundar- firði og vilja þeir sem minnsta afskipti ríkisvaldsins. Á þeim þremur vikum, sem liðnar eru frá stofnun Jöklamjöls hf, hafa safn- azt yfir 70 millj. króna sem hluta- fé • félagið. Árni Emilsson, sveitarstjóri í Grundarfirði, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að gífurlegur áhugi væri á byggingu fiskimjöls- verksmiðju í Stykkishólmi og í Grundarfirði Forráðamenn Jökla- mjöls h.f. hefðu þegar ráðið Stefán Örn Stefánsson verkfræðing til að gera rekstrar- og kostnaðaráætlun fyrir fiskimjölsverksmiðju þar, og eðlilega hefðu menn loðnubræðslu mikið í huga Stefán Örn hefði nú skilað sinni skýrslu og lægi hún nú hjá sjávarútvegsráðherra — Þær góðu undirtektir, sem stofnun hlutafélagsins hefur fengið hér um slóðir, sýnir, að menn vilja taka áhættu á að byggja slíka fiski mjölsverksmiðju með því að leggja fram fé í hana Það er timi til kominn að horfið sé frá ríkisrekstri yfir i einkarekstur á nýjan leik, enda er nóg komið af hinu fyrrnefnda, sagði Árni Þá benti Árni á, að stjórnskipuð nefnd hefði lagt til að ef ný fiski- mjölsverksmiðja yrði reist i landinu, þá yrði það á Snæfellsnesi Grund- firðingar og Stykkishólmsbúar stefndu að þvi að hafa verksmiðjuna sem fullkomnasta, þvi þeir teldu að þvi fullkonari sem verksmiðjan yrði, þvímeiri möguleikar væru á að reka hana með góðum árangri Að lokum kvað Árni Grundarfjörð hafa orðið fyrir valinu þar sem staðurinn væri mjög miðsvæðis á Snæfellsnesi. þar væri einnig mjög auðvelt að gera djúpa höfn og öll hafnarmannvirki langt komin i bygg- mgu. I samtali við Mbl sagði Alexand er Stefánsson, sveitarstjóri i Ólafsvík, að þar og á Hellisandi hefði rikt mikill áhugi i tvö ár á að reisa fullkomna fiskimjölsverk- smiðju. Menn hefðu reiknað með að fá jákvæða afstöðu rikisvaldsins og lagt hefði verið til á Alþingi að reist yrði slik verksmiðja á Snæfellsnesi, en afstaða alþingismanna hefði ver- ið neikvæð Sagðist Alexander vilja benda á, að ástandið á vestanverðu Snæfells- nesi væri þannig, að þar væri engin feitmjölsverksmiðja og skapaði það mörg vandamál, en 10—12 þús tonn af hráefni kæmu frá bátaflotan- um á hverri vertið — Það er því mjög eðlilegt að em stór fiskimjölsverksmiðja risi á þessu svæði. en verkefnið er ófram- kvæmanlegt ef rikisvaldið kemur ekki til Ætli að endalokin verði ekki að 3—4 litlar verksmiðjur verði byggðar Hellisandsbúar og Ólafsvíkingar vilja að ríkið verði stór hluthafi Frá Ólafsvík. Frá Gundarfirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.