Morgunblaðið - 07.10.1975, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1975
kfíf&s*
JK ' * , * - *
aÉÉtefcé**,:, *>»•*• _ »-3BB
VELTA — Þessi Bronco-jeppi valt á Hellisheiði um hádegisbilið á sunnudag, en þá
var snjóföl ofarlega á heiðinni. Tveir voru í bílnum, en þótt ótrúlegt megi virðast
slapp annar ómeiddur, en hinn brákaðist á fæti og skarst lítillega á höfði.
Ljósm. Mbl.: Georg Michelsen.
Verzlunarráð íslands:
VERZLUNARRAÐ lslands hefur
sent frá sér fréttatilkynningu,
þar sem fram kemur að útlán
Guðjón Hjórleitsson
Aldraður mað-
ur lézt eftir
umferðarslys
GUÐJÓN Hjörleifsson, 83ja ára
gamall maður, sem varð fyrir
bifreið klukkan 15,20 sfðastliðinn
föstudag á Hverfisgötu á móts við
húsið númer 39, lézt af völdum
höfuðáverka, sem hann hlaut við
slysið á föstudagskvöld. Guðjón
átti heima á Hverfisgötu 47.
Tildrög slyssins voru þau, að
Guðjón var á leið suður yfir
Hverfisgötuna og lenti þá fyrir
bíl, sem ók austur Hverfisgötu á
hægri helmingi götunnar. Önnur
bifreið var á leið austur Hverfis-
götu á vinstri helmingi götunnar
og ber bifreiðarstjórinn, sem ók á
Guðjón, að hann hafi ekki séð
hann fyrr en skyndilega að hann
kom úr hvarfi frá bílnum, sem ók
á vinstri helmingi götunnar.
Bifreiðarstjórinn hemlaði, en
tókst ekki að forðast árekstur.
Guðjón heitinn var þegar flutt-
ur í slysadeild Borgarspítalans.
Hann lézt um klukkan 20 á föstu-
dagskvöld.
viðskiptabankanna til atvinnu-
veganna hafa aukizt að meðaltali
um 25% meðan útlán Seðlabank-
ans til rfkissjóðs og rfkisstofnana
hafa aukizt um 118%. Mótmælir
Verzlunarráðið áframhaldandi
útlánastöðvun til atvinnuveganna
á sama tfma og útlán til rfkissjóðs
aukast. Fréttatilkynning Verzlun-
arráðs Islands fer hér á eftir:
ALYKTUN
Verzlunarráðs tslands um útlána-
bindingu bankanna
í tilefni af fréttatilkynningu
Seðlabanka tslands og viðskipta-
bankanna, þess efnis, að brýna
nauðsyn beri til að halda áfram
þeirri stefnu í útlánamálum, sem
fylgt hefur verið fram til þessa,
til þess að hamla gegn áframhald-
andi þenslu í efnahagsmálum, vill
framkvæmdastjórn Verzlunar-
ráðs íslands taka fram eftirfar-
andi.
Á þvf timabili, sem umrædd
stefna í útlánamálum hefur verið
við lýði, hafa útlán Seðlabanka
tslands til ríkissjóðs og stofnana
hans stóraukizt. Slík útlánaaukn-
ing getur einungis leitt til aukinn-
ar eftirspurnar eftir öllum vörum
og þjónustu. Þegar slíkt er gert á
sama tíma og atvinnuvegunum er
með útlánastöðvun gert ókleyft að
mæta eftirspurninni með aukinni
framleiðslu og vöruframboði,
hlýtur afleiðingin að verða aukin
þensla og verðbólga. Þessu til
skýringar fylgja hér nokkrar töl-
ur, sem sýna útlánaaukninguna
frá 31. ágúst 1974 til 31. ágúst
1975.
Útlánaaukning 31/8 1974 —
31/8 1975.
Seðlabanki íslands til: %
Ríkissjóðs og ríkisstofnana 118
Bankar og aðrar innláns-
stofnanir til: %
Ríkissjóðs og ríkisstofnana 58
Bæjar-og sveitarfélaga 17
Lánastofnana 31
Landbúnaðar 43
Sjávarútvegs 31
Verzlunar 19
Iðnaðar 28
Byggingarverktaka íbúða 31
Byggingarverktaka aðrir -f-12
Þjónustustarfsemi 27
Utlán viðskiptabankanna hafa á
Framhald á bls. 35
Ársþing LÍV á Hornafirði:
Bíða með kröfugerð-
ir þar til fjárlög
hafa verið lögð fram
Mótmælir útlánastöðv-
un til atvinnuveganna
— meðan útlán til ríkissjóðs aukast
Höfn 6. október
KL. 10 ARDEGIS var sett f Hótel
Höfn í Hornafirði ársþing LÍV,
Landssambands fsl. verzlunar-
manna. Þingið setti Björn Þór-
hallsson að viðstöddum 72 full-
trúum. Gestir þingsins voru Þor-
steinn L. Þorsteinsson formaður
verkalýðsfélagsins Jökuls f Höfn,
Sigurður Hjaltason sveitarstjóri
og Friðjón Guðröðarson lögreglu-
stjóri. 1 setningarræðu sinni bað
formaður menn um að fara var-
lega f kröfugerð, þar sem fjárlög
væru ekki komin fram og ekki
vitað hvort rfkisstjórnin héldi
sömu útþenslustefnu. En ef svo
færi væri ekki annað að gera en
svara f sömu mynt. Formaður
bauð velkomið f LlV Verzlunar-
mannafélag A-Skaftfellinga, sem
stofnað var sl. miðvikudag og með
þvf hefði hringurinn hjá LlV
lokazt, þvf að nú væru komin
verzlunarmannafélög um allt
landið.
I samtölum við fulltrúa kom
fram, að þeir telja þetta þing
munu verða stefnumarkandi I
kjaramálum, þar sem þetta er
fyrsta þing launasamtaka nú f
haust. En LlV er stærsta lands-
sambandið innan ASl og telur
nálægt 10 þúsund manns.
Að kjaramálum frágengnum
mun Lífeyrissjóður verzlunar-
manna verða eitt af stóru um-
ræðuefnum þingsins. Honum
hefur safnazt mjög fé á seinni
árum, en bótagreiðslur verið í al-
geru lágmarki. Árið 1974 greiddi
sjóðurinn vegna 43 barna 4,2
milljónir ekknalífeyri fyrir 21
ekkju, 643 þúsund, ellilffeyri til
39 aðila, 902.124 kr., örorkulífeyri
til 3ja sjóðsfélaga, 72.608 kr.
Þetta er samtals 5.817.732 kr.
Mun þetta næsta lítið miðað við
vaxtatekjur upp á 181 milljón
Björn Þórhallsson
formaður L.I.V.
króna á sl. ári, iðgjaldatekjur
410,5 milljónir og endurgreidd
lán 95,5 milljónir. Er aukningin á
árinu 143,9 milljónir eða 53,9%.
Björn Þórhallsson var endur-
kjörinn formaður L.I.V. og að
Framhald á bls. 35
Leit að gull-
skipi ár-
angurslaus
LEIT að hollenzku Indíafari,
sem Bergur Lárusson hóf 1960
hélt áfram f sumar á vegum
Björgunar h/f o.fl. Leitin bar
ekki árangur og áttu leitar-
menn við mikla erfiðleika að
etja þar sem gffurlegt vatn var
á sandinum vegna rigninga f
sumar.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um, hvort leit verður
haldið áfram.
„Hefði alltaf átt að
salta síldina í landi”
••
— segir Ogmundur á Jóni Garðari
„OKKUR Ifzt mjög vel á þetta
nýja fyrirkomulag og svona hefði
það alltaf átt að vera. Með þvf að
salta sfldina f landi, skapast
miklu meiri verðmæti fyrir þjóð-
arbúið en þegar vcrið er að bogr-
ast við að salta síldina um borð f
veiðiskipunum," sagði Ögmundur
Magnússon, skipstjóri á Jóni
Garðari þegar Morgunblaðið
spurði hann að þvf hvernig hon-
um litist á þá ákvörðun sjávarút-
vegsráðuneytisins að heimila
Gagngerð skoðun á staf-
setningarreglum að hefjast
— Z einn liður í því, segir menntamálaráðherra
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við Vilhjálm
Hjálmarsson menntamálaráð-
herra til að spyrjast fyrir um
hvað liði undirbúningi löggjaf-
ar um fslenzka stafsetningu og
þá sérstaklega varðandi z, en
rfkisútgáfa námsbóka lét í
sumar prenta zetulausa fs-
lenzka stafsetningarorðabók
með beygingarendingum.
„I samræmi við fyrri orð
okkar,“ sagði menntamálaráð-
herra, ,,og samþykkt slðasta
Alþingis um að fela ríkisstjórn-
inni að undirbúa löggjöf um
stafsetningu, munum við taka
þessi mál fyrir að afloknum
sumarleyfum og þá verða hin
ýmsu atriði skoðuð niður í kjöl-
inn. Varðandi útgáfu stafsetn-
ingarorðabókarinnar þá var
ákveðið í for að láta hana bíða
um sinn ef unnt yrði að komast
hjá því að gefa hana út, en
gamla stafsetningarorðabókin
mun hafa verið orðin uppurin
og því þótti ekki annað fært en
prenta bókina í Iitlu upplagi,
því hún var lengi búin að bíða
tilbúin til prentunar og þótt
fullorðnir þræti um zetuna,
verður að halda áfram að kenna
unga fólkinu að skrifa, en inn-
an skamms verður sett í gang
gagngerð skoðun á málinu og z
er einn liður í því.“
I samtali Morgunblaðsins við
Sigurð Pálsson skrifstofustjóra
ríkisútgáfunnar sagði hann, að
þessi bók, sem er 230 blaðsiður
að stærð í litlu broti, hefði verið
tilbúin til prentunar í feb. sl.
eða þremur mánuðum áður en
meirihluti þingmanna skoraði á
menntamálaráðherra að taka z
aftur í gildi I íslenzku ritmáli.
Sagði Sigurður, að þar sem
hliðstæðar bækur hjá ríkisút-
gáfunni hefðu verið uppseldar
héfði forlagið látið prenta
aðeins 1500 eintök af-stafsetn-
ingarorðabókinni og ætti það að
nægja eftirspurn í vetur, því
bókin væri sölubók til að bæta
úr vöntun en ekki til skyldu-
dreifingar.
sfldarsöltun f landi, en fram til
þessa hafa síldveiðileyfi verið
bundin þvf að bátarnir söltuðu
sfldina skilyrðislaust um borð.
Ráðuneytið hefur nú gefið út
leyfi til síldveiða í herpinót fyrir
samtals 42 báta og hefur verið
ákveðið að fleiri veiðileyfi verði
ekki gefin út á þessari vertíð.
Eins og kunnugt er þá er heimilt
að veiða 7500 lestir af síld I herpi-
nót á þessari vertíð og hefur afla-
magni þessu veríð skipt milli bát-'
anna þannig, að 185 tonn koma f
hlut hvers þeirra.
I fréttatilkynningu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu segir, að það
muni fylgjast nákvæmlega með
því, að einstakir bátar fiski ekki
meira en nemur 185 tonna kvót-
anum, en ef það mun koma fyrir
Framhald á bls. 35
Börkur til
Mauritaníu
Neskaupstað 6. október
NÖTASKIPIÐ Börkur kom í
heimahöfn um helgina eftir
meira en mánaðarútivist f
Barentshafi en þar var skipið sem
kunnugt er á loðnuveiðum ásamt
tveimur öðrum loðnuskipum
íslenzkum. Gert er ráð fyrir, að
Börkur haldi eftir vikutíma eða
svo áleiðis til Mauritaníu þar sem
skipið mun verða á makrflveiðum
ásamt fleiri fslenzkum skipum og
leggja upp í Norglobal sem fyrr.
Asgeir.