Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1979, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 09.06.1979, Blaðsíða 3
Þannig leit hinn verðandi hugsuður út 8 ára. Þeim til hughreystingar, sem eiga seinþroska börn, má benda á, að drengurinn Albert þótti seinn til máls og var ekki einu sinni læs á níunda ári. Albert Einstein ungur maður og ekki sérlega efnilegur. Hann þótti slá slöku við nám og lærifeður höfðu ekki mikið álit á honum. Að námi loknu fékk hann vinnu sem „þriðja flokks sérfræðingur“ á einkaleyfaskrifstofu í Bern. staöreynd, aö Einstein voru veitt Nób- elsverðlaun fyrst áriö 1921 , sextán árum eftir útgáfu afstæöiskenningarinn- ar og án þess aö mikilvægi þeirrar uppgötvunar væri sérstaklega umtalaö. Verölaunin voru veitt aöallega fyrir rannsóknir á fótónunum fyrrnefndu. Margt hefur veriö ritaö um afstæöis- kenninguna og veröa henni síst af öllu gerö tilhlýöileg skil hér. En viö skulum staldra viö hornsteina hennar og reyna aö gera okkur grein fyrir hinni gífurlegu byltingu sem hún olli. Fyrst og fremst grundvallaöi Einstein sköpun sína á þeirri tilgátu aö Ijóshraö- inn væri fastur stuöull. Michelson og Morley höföu mælt þennan hraöa, sem svarar til aö Ijósið gæti fariö átta hringi umhverfis jöröina á sekúndu hverri við yfirborö. Tilgátan um fastan hraöa Ijóssins ásamt tilgátunni um eöli viö- miðunarkerfa leiddi til þess aö hiö sígilda þrívíða rúm fékk nýja fræöilega vídd, tímann. Og eftir því sem hraöi hluta nálgast Ijóshraöann meir, þeim mun meira áberandi veröur þessi fjóröa vídd. Þetta voru viðkvæmir strengir sem Einstein snerti. Tíminn er svo sam- gróinn lífi manna, aö erfitt var aö sætta sig viö aö hann hlyti sérlegum lögmál- um; væri dyntóttur og teygjanlegur. Menn léku sér aö alls kyns mótsögnum sem hægt var aö leiða af Lorentz-líking- unum fyrir afstööu tíma, rúms og hraöa. Eitt skemmtilegt dæmi er sagan af tvíburabróðurnum sem geystist út í geiminn og var fjarverandi í ár, en sneri heim aftur og kom aö bróður sínum öldungi á grafarbakkanuml (þessi mót- sögn á sér reyndar rangar forsendur því aö um hrööun er aö ræöa). Afstæðiö sjálft var svo fjarri hinum „hversdagslega veruleika" aö ekki bætti úr skák fyrir vinsældir kenningarinnar. Ein sérkennileg og sönn „mótsögn" væri t.d. aö gera ráö fyrir aö geimfarinn fyrrnefndi gæti frá glugga geimfars síns séö Skaftárelda geisa um leiö og skákeinvígiö fór fram í Reykjavík! Þetta væri hægt aö setja upp með því að aðlaga nokkrar breytistærðir í Lorentz- líkingunum. Þó væri mismunurinn fólg- inn í því aö geimfarinn yröi ekki sammáia fastalandsbúum um fjarlægö- ina á milli Skaftár og Elliöaánna! Samkvæmt afstæöiskenningunni er „fortíö" og „framtíð" háö athuganda, hraöa hans og afstæöum fjarlægöum. Ástæöan fyrir því hversu þessi síöasta saga er „óhugsandi" er aö hraöi og hraöamörk okkar hversdagslega veru- leika eru aöeins örbrot af Ijóshraðan- um. Hljóöfrá þota í samanburði viö Ijóshraöann er eitthvaö ámóta hlutfall og hægfara snigill í samanburöi viö þotu. Þannig er skynjunarhæfni manna takmörkuö- af þeim fjarlægöum og þeim hraöa sem þeir búa viö. En þar kom þó aö afstæðiskenning- una var hægt aö sanna aö einhverju leyti meö tilraunum. Einstein haföi meö útreikningum sínum komist aö því, aö Ijósgeisli bognar í nálægö massa. Þetta voru meðal annarra niöurstaöa al- mennu afstæöiskenningarinnar 1916. Vegna þess hversu bognunin var iítil þurfti himinhnetti til þess aö sanna tilgátuna. Tilraunir leiddu í Ijós sanngildi Ijósbognunarinnar. Annaö atriöi var sú staðreynd aö braut Merkúrs um sólu fylgdi ekki alveg þeim niöurstööum sem newtonska aflfræöin geröi ráö fyrir. Almenna afstæöiskenningin, sem var í senn djúp og fagurfræöilega hönnuö, geröi ráö fyrir breytingu frá fyrr útreikn- aöri braut og leiörétti hana. Þegar þetta er ritaö eru vísindamenn viö Massachusetts háskóla, sem skoö- aö hafa tvístirni í himingeimnum sann- færðir um, aö þeir hafi fundiö dæmi um þyngaraflsbylgjur, sem Einstein reyndi aö gera grein fyrir meö almennu afstæöiskenningunni. Þaö var síöasta stórátakiö sem hann tók sér fyrir hendur. Einstein var sannfæröur um aö þyngdarsvið og rafsegulsviö væru sam- ofin fyrirbrigöi. Sú kenning hefur verið nefnd sameinaöa sviðskenningin. Um óbeinu áhrif afstæöiskenningar- innar er ekki hægt að fjalla eins örugglega. Víst er að heimspeki, listir og listsköpun fóru ekki varhlutann af þessum hræringum í vísindunum. Af- stæöiö endurspeglaðist víöa í bæði tónlist og myndsköpun. Atómöldin á rætur sínar í orku-massa-jöfnu Ein- steins; viö komum aö þeim þætti síðar. Á íslandi ortu menn „atómljóð“ — og nafniö kannski helst gefiö til kynna að fornu Ijóöformi var splundraö. Steinn Steinarr, „atómskáldiö“ var heillaöur af hinu nýja viöfangsefni vísindanna og gaf því fagurfræðilegan blæ í Ijóöi sínu TÍMINN OG VATNIÐ: . . . Og tíminn er eins og mynd sem er máluð af vatninu og mér til hálfs ... Og dularfullir eiginleikar rúmsins: ... A hornréttum fleti milli hringsins og keiiunnar vex hiö hvíta blóm dauöans ... Tíminn er afstæöur, jafnvel kyrr eins og hér: ... Og líf mitt stóö kyrrt eins og kringlótt smámynt sem reist er upp á rönd ... Áöur en viö hverfum frá þættinum um áhrif kenningarinnar er ekki hægt að láta ógetiö, aö meö henni opnaöist ný vísindagrein, alheimsfræöin, sem beitir aöferöum almennu afstæöiskenn- ingarinnar á alheiminn og ieitast viö aö svara áleitnum spurningum um fyrir- brigöi eins og endanleika, aldur og útþenslu hans. Túikun á geislun frá fjarlægum sólkerfum rúmsins væri óhugsandi án þeirrar vitneskju sem í kenningunni felst. Meö alheimsfræöinni varö 20. öldin landafundatími og öld kortlagninga á ný eins og þegar skip Magellans kortlögðu jöröina, sem einu sinni var „alheimur" mannkyns. Sjálfur haföi Einstein mikil afskipti af þjóöfélagsmálum seinni hluta ævinnar. Hann trúöi því að aöeins yröi jafnvægi þjóðfélagslega ef menn fylgdu rökfast einföldum forsendum, og sannleikurinn var honum mikilvægur í mannlegum samskiptum. Einstein naut mikils álits og orö hans voru nánast lög. Þetta olli því aö félagasamtök og hagsmunahóp- ar sóttust eftir honum sem eins konar skrautfjööur til þess aö helga málefni sín. Stundum gekk þetta of langt. Einn lífsþáttur olli Einstein nokkrum áhyggjum og hefur eflaust valdiö hon- um vissri sjálfsásökun. Þetta var atóm- sprengjan, sem á sínar dýpstu fræöi- legu rætur í efnis-orku líkingum Ein- steins. Afskipti hans af atómsprengj- unni voru fólgin í bréfi sem hann sendi Roosevelt Bandaríkjaforseta aö áeggj- an Fermis og fleiri þekktra vísinda- manna, þar sem hann varar viö þeirri hættu aö Þjóöverjar gætu hagnýtt sér þá þekkingu sem eölisfræöingar höföu á hugsanlegri keðjuvirkni,— spreng- ingu. Bréfiö átti ríkastan þátt í aö hafist var handa viö gerð sprengjunnar. Mikiö hefur veriö deilt á þessa gjörö Einsteins og þykir sumum bréfiö vera blettur á ferli hans. Eitt er víst aö sprengjan haföi sterk áhrif á hann þegar honum voru flutt tíöindin 6. ágúst 1945. Eftir aö hafa lifaö landflótta vegna gyðinglegs uppruna síns varð Einstein bandarískur ríkisborgari 1940. Hann Framhald á bls. 14. ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.