Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1978, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 18.06.1978, Blaðsíða 2
KVENSTÚDENTAFÉLAGIÐ 50 ÁRA í íslenzku bændaþjóðfélagi 19. aldar ríkti hefðbundin hlutverkaskipting kynj- anna. Þegar litið er til menntunaraðstöðu kvenna, áttu þær ekki margra kosta völ. Þær höföu engan aögang að mennta- stofnun landsins, og hugsunarhátturinn var sá, að fáum hefði dottið í hug, að þær kæmust þangað. Ætla má, að aðstaða kvenna til að afla sér undirstöðufræöslu hafi verið verri en karla við hinn ríkjandi hugsunarhátt. Heita mátti.....að allur þorri stúlkubarna lærði ekkert annað bóklegt en það, sem minnst þurfti, til þess að komast gegnum kverið til fermingar- undirbúnings. Þótti meira að segja ekki við eiga, að alþýðustúlkur væru að hnýsast í frekara nám.'i.) Lestur lærðu öll börn á heimilunum, en með frekari fræðslu, svo sem skrift og reikning, sátu stúlkur á hakanum. Þó munu þær frekar hafa lært að skrifa, ef þær áttu bræöur. Ennfremur höfðu drengir meiri tíma aflögu til lestrar, ef bækur voru til á heimilunum, stúlkum var ætlað að sitja við heimilisvinnu. í ævisögum og endurminningum blasir við okkur mynd af konunni, sem þráði að afla sér menntunar, en átti þess engan kost. Þar lagðist á eitt, viðhorf bænda- þjóöfélagsins og löggjöfin, sem miðaði að því að þjóðfélagsstaöa kvenna héldist óbreytt. Enda þótt flest lagasetning, sem miöaði að aukinni menntun kvenna sé bundin 20. öldinni, þokaöist þó í áttina á síöustu áratugum 19. aldar. Fróðlegt er að rifja upp í stuttu máli nokkra áfanga á leiö til þeirra sjálfsögðu mannréttinda, að jafn- rétti ríkti mjlli kynjanna í menntunarmál- um. Við þá sögu komu í fyrstu framsýnir karlar og síðan kvennahreyfingin, sem frá upphafi lagöi á þaö megináherzlu og barðist fyrir, að menntun stæði til boða konum jafnt sem körlum. Kvennaskólar Upp úr miðri 19. öld ríkti í Danmörku mikill áhugi á aukinni menntun kvenna og gætti áhrifa þess hér á landi. Dætur Gríms Jónssonar, amtmanns, Ágústa og Þóra, ráku stúlknaskóla í Reykjavík á 6. áratugnum, þegar enginn barnaskóli var í bænum. í þessum skóla stunduöu nám 20—30 stúlkur á vetri, og Eiríkur Magnússon í Cambridge sagði löngu síðar, að þær systur hafi fyrstar hafiö ...disiplineraða skólafræðslu kvenna á íslandi...“, og ..lagt þar gjörva hönd á gott verk.-2) Þessi skóli leysti raunar ekki.vanda, því aö aðeins efnaðri menn höfðu ráð á að senda dætur sínar þangað. Stofnun Kvennaskólans í Reykjavík áriö 1874 var merkilegt spor, sem flýtti fyrir stofnun þriggja kvennaskóla á Norður- landi. Þóra Grímsdóttir Melsteö gerðist ásamt manni sínum, Páli Melsteð, braut- ryðjandi í menntunarmálum kvenna, og fékk til liðs við sig konur, sem vegna stööu sinnar gátu haft áhrif á valdamenn þjóöarinnar. Það er að sjálfsögðu engin tilviljun, að fjórir kvennaskólar voru settir á stofn á þessum tíma. Þar var margt að verki. Sjálfstæðisbaráttan og baráttan fyrir aukinni menntun þjóðarinnar hélzt í hendur, og færöi því hver skóli, sem hóf göngu sína, þjóðina nær marki og áfangarnir í sjálfstæðisbaráttunni efldu íslenzkt skólahald. í kvennaskólunum stunduðu nám hundruðir kvenna, sem komu þaðan með aukna þekkingu, bóklega og verklega. Úr þessum hópi komu margar þær konur, sem stóðu fremstar í kvennahreyfingunni, sem hófst á 9. áratug 19. aldar, og er þáttur þeirra þar býsna stór. Að þessu leyti er náið samband milli kvennaskólanna og rétt- inda þeirra, sem konur fengu næstu áratugina. Þaö má raunar geta þess hér, að Bríet Bjarnhéðinsdóttir var einn vetur ©i NOKKUR ORÐUM MENNTUN KVENNAA ÍSLANDI Eftir Sigríöi Th. Erlendsdöttur á kvennaskólanum á Laugalandi, lengri var hennar skólaganga ekki. En það er næstum ótrúlegt, hve vel mörgum nýttist jafnvel nokkurra mánaöa skólaganga, ef áhugann og viljann skorti ekki. Áriö 1885: Fyrsta skrefið Lengi gerðu konur sjálfar ekkert til aö fá hlut sinn bættan meö lagasetningum. Það sem áunnizt hafði fram undir síöasta áratug 19. aldar var verk frjálslyndra karla, sem tóku málefni kvenna upp á stefnuskrá sína. Ber þar fyrst aö nefna Sighvat Árnason, hreppstjóra og þing- mann Rangæinga, sem áriö 1885 flutti á alþingi þingsályktunartillögu um rétt kvenna til skólagöngu. Hann komst svo aö orði, þegar hann talaöi fyrir frumvarp- inu:.....það, sem lengi hefur legið í dvala, það vaknar seint.-3.) í tillögunni var fariö fram á aö veita konum rétt til að ganga á prestaskólann og læknaskólann. Magnús Stephensen sagði, aö konum heföi aldrei veriö bannað að ganga á þessa skóla, þær hefðu bara aldrei farið þess á leit. Ásgeir Einarsson, þingmaður Strandamanna, lét þessi orö falla í umræðunum: „Reynslan og verald- arsagan hefur sýnt og sannað, að'í þeim löndum, þar sem kvenfólkiö hefur fengið að njóta sín, fengið að framast og menntast, hefur það veriö engu síöur gáfað en karlmennirnir."4.) Málið fékk góðar undirtektir á þinginu, aðeins Jón Pétursson, 2. konungkjörinn, mælti á móti því: „Jeg get ekki sjeð,1 til hvers þetta er. Kvennmenn, sem vilja taka slíkt próf, veröa aö takast ferð á hendur til Reykjavíkur. Jeg get ekki sjeð, hvað þeir hafa upp úr slíkri ferð, nema kostnaðinn tóman.-5.) Mótbárur þessa eina þingmanns nægöu ekki til aö fella tillöguna, og ári síöar gekk í gildi tilskipan, sem veitti konum rétt til að taka 4. bekkjar próf við lærða skólann. Raunar fengu þær hvorki styrki né rétt til þess aö sitja í skólanum, en piltar gáfu þá fengið 100—200 kr. á ári, sem nægöi til þess aö greiöa kostnaöinn til skólaveruna. Þaö kann að hafa haft einhver áhrif á afstöðu þingmanna, að um þetta leyti var íslenzk embættismannsdóttir viö nám í latínuskóla í Danmörku.........og er undarlegt aö þurfa aö leita út úr landinu til þess háttar.-6.) Þá hefur barátta kvenna erlendis trúlega haft einhver áhrif á afstöðu íslenzkra þingmanna. íslenzka embættismannsdóttirin, sem hér var getið, var Camilla Stefánsdóttir Bjarnason, sem lauk stúdentsprófi í Kaupmannahöfn árið 1889, fyrst íslenzkra kvenna. Hún lauk cand. phil. prófi viö Háskólann í Kaupmannahöfn ári síðar, lagði stund á stæröfræði þar og geröist kennari við Frk. Langs Skole í Silkiborg á Jótlandi. Hún giftist Magnúsl Torfasyni, sýslumanni og var búsett hér á landi. Árið 1901 lauk Björg Þorláksdóttir Blöndal, sonardóttir séra Þorláks á Undirfelli, stúdentsprófi í Kaupmanna- höfn. Hún varði doktorsritgerð um iífefnafræði við Sorbonne-háskólann í París 1926. Áriö 1885: Páll Briem Árið 1885 kvaddi sér hljóðs Páll Briem, síðar amtmaður, sem mun fyrstur manna hafa hafið máls á því, að konum bæru full pólitísk réttindi. Hann hélt fyrirlestur í íslendingafélaginu í Kaupmannahöfn, sem hann nefndi: „Um frelsi og menntun kvenna“. — Sögulegur fyrirlestur. í fyrirlestrinum rakti hann sögu kven- frelsisbaráttunnar um allan heim og segir í upphafi: „Þegar jeg nú tala um baráttuna fyrir frelsi kvenna, þá á jeg eigi við baráttu til þess að losa kvennfólk undan kúgun og þrældómi — mér virðist slíkt eigi sjer hvergi stað í menntuðum löndum — heldur tala jeg um baráttuna fyrir því, að kvennmenn fái rjettindi, fái vald.-7.) Þegar Páll Briem flutti fyrirlesturinn, höfðu danskar konur í einn áratug fengið að ganga í Háskólann í Kaupmannahöfn og höfðu ýmsar konur notfært sér það leyfi, einnig voru margar konur þar í landi að lesa til stúdentsprófs. Svíþjóð og Noregur höfðu ennfremur veitt konum þennan rétt. Það er enginn vafi á því, að bók John Stuarts Mill um Kúgun konunn- ar, sem Georg Brandes þýddi á dönsku árið 1869, hefur haft umtalsverð áhrif á frjálslynda menn þessara tíma. Áriö 1887: Bríet Bjarnhéöinsdóttir Árið 1887 hélt Bríet Bjarnhéðinsdóttir fyrsta fyrirlestur, sem kona hefur haldið á íslandi, „Nokkur orö um frelsi og menntun kvenna. Fyrirlestur um hagi og réttindi kvenna." Hún flutti hann í Góðtemplara- húsinu 30. des. 1887 við húsfylli, og má segja að þar með hefjist brautryðjenda- starf hennar í kvenréttindamálum. Raunar hafði hún árið 1885 skrifað blaðagrein um sama efni í Fjallkonuna, undir dulnefninu ,,Æsa“8 ), sem vakti bæði umtal og áhuga. Það var fyrsta blaðagrein konu á íslandi. Valdimar Ásmundsson, ritstjóri og síðar eiginmaður Bríeter, skrifaöi sama ár grein í Fjallkonuna um réttindamál kvenna. Sjálf segir Bríet9.) að það atriði, að enginn möguleiki var fyrir stúlkur að afla sér menntunar, hafi orðið til þess aö hún fór aö hugsa alvarlega um mismuninn á aöstöðu kvenna og karla. í fyrirlestrinum fjallar Bríet um stööu konunnar í heiminum og vitnar í biblíuna máli sínu til

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.