Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1977, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 05.06.1977, Blaðsíða 5
nFTRniT ót,inn býr á UC I l\UI I 5ak við læstar dyr, sem ekki er lokið upp öðruvisi en öryggiskeðja sé sett á fyrst. Það er ekki að ástæðulausu. Óaldarlýðurinn hefur margoft leikið það að hringja dyrabjöllum hjá öldruðum og þegar dyrnar opnast, er ruðst inn og rænt því sem fengur þykir í. Þeim sem lifa í stöðugum ótta við þesskonar heimsóknir, mundi þykja það himnaríki líkast að geta farið óhræddur og öruggur um allar trissur. Sem betur fer getur Reykja- vík státað af þvi enn sem komið er. alltaf látnir iausir fljótlega. Gamla fólkinu er ljóst, hve lögin eru lítils nýt i þessu efni, og þess vegna lætur það oft hjá líða að kæra þá, sem ráðast' á það. Það óttast, að þeir verði bráðlega látn- ir lausir, komi þá aftur í heim- sókn og verði hálfu verri viðskipt- is. Af þessum sökum er fjöldi gam- almenna, svartra sem og hvítra, fanginn i íbúðum sínum í fá- tækrahverfum borgarinnar. Sumir fara helzt aldrei út. Kona nokkur var svo hrædd um sig, að hún þorði ekki út með rusl en tróð þvi í plastpoka, batt fyrir og stafl- aði pokunum í eitt herbergi í ibúð sinni. Það fylltist von bráðar. Þá læsti konan þvi og fór að stafla pokunum i næsta herbergi og svo koll af kolli. Hún lifði langtímum saman á súkkulaðikexi; kastaði smáaurum út um glugga til barna, sem voru að leik fyrir utan, og bað þau hlaupa út i söluturn fyrir sig. önnur kona flutti rúmið sitt fram í anddyri og svaf þar al- klædd, reiðubúin að spretta upp og forða sér út, ef reynt yrði að brjótast inn í svefnherbergið hennar. Það hafði komið fyrir þrisvar sinnum. Hafði hún svo slæma reynslu af hinum ungu ræningjum, að hún sagði, að þeir væru „ekki mennskir menn. Þetta eru skepnur". Lögreglan í New York hefur reynt ýmislegt til þess að ráða bug á þessum ófögnuði. Sérstakar lögreglusveitir hafa verið stofn- aðar til þess að verja gamla fólkið og reka réttar þess. Reynt er að fá það til að kæra árásarmenn stna. Þá er reynt að einfalda réttarhöld til þess að reyna ekki um of á gamalmennin. Þeim eruu haldnir fyrirlestrar og gefin góð ráð, t.d. ráðið til þess að fara ekki ein heim ef þau haldi, að einhverjir elti þau, en reyna heldur að ná i lögregluþjón. Enn fremur er hafður sérlegur lögregluvörður i ákveðnum götum og gamla fólk- inu ráðið að verzla þar. Loks má nefna það, að unglingar úr fram- haldsskólum h,afa boðizt til þess að fylgja gömlu fólki í búðir og annað, sem það þarf að fara. Lögreglan þykist sjá, að ein- hverjar framfarir hafi orðið í þessum málum. En þvi miður eru þær framfarir ákaflega hægar. Rúmlega 600 innbrotsmál af þvi tagi, sem hér um ræðir komu til kasta lögreglunnar í Bronx i fyrra — en einungis 82 ránsmenn voru handteknir. Það má betur, ef duga skal. Á ég að drepa hann? Blaðamaður sótti heim Charlie Betrisch, einn af fjölmörgum, sem orðið hafa fyrir barðinu á óþjóðalýðnum i Bronx og ekki fengið neinar bætur. Bertsch er 87 ára að aldri. Hann býr einn með nokkrum köttum sinum í kjallaraibúð og hefur búið þar frá þvi 1911. I hverfinu þarna bjuggu forðum velmegandi menn, það er liðin tið. Nú er hverfið hálfeytt af fólki, húsin niðurnídd og göt- urnar stráðar sorpi. Það var einn morguninn, að Bertsch opnaði dyrnar að íbúð sinni og ætlaði að hleypa hund- inum sinum út. „Ég vissi þá ekki fyrri til“, sagði hann, „en ég lá á gólfinu. Atta Púertórikanar þustu inn og tóku til að berja mig með spýtum. Hundinn slógu þeir með hamri í hausinn. Þeir sneru öllu við og fundu loks 60 dollara (11.500 kr.) i smámynt. Svo laut einn þeirra yfir mig og ég sá, að hann hafði hníf i hendi. Á ég að drepa hann núna? spurði hann félaga sinn. Nei, sagði þá hinn, stjórinn vill ekki láta drepa hann“. Piltarnir skildu við Betrsch liggjandi á gólfinu. Hann lá þar lengi dags. Enginn kom. Það var svo loks um sexleytið um kvöldið, að Bertsch tókst að staulast á fæt- ur. Hann lét sér þetta að kenningu verða. Hann víggirti íbúðina, bætti lásum á hurðina og negldi fleka fyrir alla glugga. „Þá geta þeir ekki kastað eldsprengjum inn um gluggana", sagði hann. Hann fer sjaldan út nú orðið; lætur senda sér mat af matsölu- stað. Hann kveðst munu flytjast frá Bronx áður langt líði. „Hér er algert lögleysi", segir hann. „Maður er jafnvel hræddur við lögregluna". Mánaðarleg vertíð Það er alltaf uppgripatími hjá upprennandi glæpamönnum i South Side I Chicago einu sinni i mánuði. Það er um það leyti, sem öldruðum eru sendir ellilífeyris- tékkarnir. Þá safnast bófarnir fyrir utan við hús gamals fólks og biða þess, að það vogi sér út að verzla. 1 West Side-hverfi er öll- um samkomum aldraðra slitið klukkan fjögur, ekki síðar, svo að menn komist heim áður en fer að dimma. „1 gamla daga var maður alltaf úti á göngu á góðviðrisdög- um og kvöldum", sagði aldraður maður þar í hverfinu, „en nú fer maður ekkert nema í bil og alls ekkert eftir, að dimma tekur“. 1 Chicago búa 500 þúsund manns eldri en 60 ára. Samkvæmt opinberum tölum segja 41% þeirra afbrot valda sér mestum áhyggjum af öllu, þeir kvíða engu meir en þvi, að ráðizt verði á þá einhvern daginn. Yfirvöld telja, að aldraðir verði ekki oftar fyrir barðinu á ránsmönnum en yngra fólk. Aftur á móti bíði aldraðir oftast mun meira tjón af árásunum en hinir yngri. Ung kona, sem er slegin niður, jafnar sig fljótlega og biður ekki skaða af nema nokkrar skrámur, sem hverfa á fám dögum. En sé áttræð kona slegin niður getur hún orðið örkumla eftir. Hún mjaðmarbrotnar e.t.v. og verður að leggjast i sjúkrahús en fær ekki meiri bata en svo, að hún verður að fara á elliheimili, getur ekki lengur séð um sig sjálf og glatar sjálfstæði sínu. Þá er oft ekki langt eftir. Fjölmörg dæmi eru til þess. Má nefna liðlega sjötuga konu, sem varð fyrir árás. Nágrannar hennar komu að þar, sem hún lá i baðkerinu heima hjá sér. Hafði hún fengið höfuðsár, sokkur var bundinn um háls henni og handleggir fyrir aftan bak. Hún hafði legið svona i bað- kerinu í tvo daga. Daginn eftir, að hún fannst, varð að taka af henni annan handlegginn og fyrir skömmu varð að taka hinn líka. Sumir aldraðir taka að verjast árásarmönnum með kjafti og klóm Hálfáttræð kona, Gerturde Booker að nafni, þreif í strákling, sem ætlaði að hrifsa af henni veski, og tókst henni að draga hann með sér er hún féll á gang- stéttina. Þegar þar var komið sögu hugsaði hún þó með sér, að veskið væri naumast þess virði, að hún berðist fyrir því. 1 veskinu var ekkert nema svo sem strætis- vagnafargjald. Sum gamalmenni hafa jafnvel farið að læra ýmsar sjálfsvarnariþróttir, karate til að mynda, svo að þau gætu borið hönd fyrir höfuð sér. tbúarnir í borgarblokkum i Uptownhverfi búa nánast við um- sátursástand. Það var ekki ólikt að hlýða á frásagnir þeirra og frásagnir hermanna á vigvöllum. Þetta gamla fólk hafði endalausar sögur að segja af árásum, sem það eða kunningjar þess og nágrannar .höfðu orðið fyrir. Einhverjir höfðu ráðizt á niræða konu og veitt henni áverka með hnifi. Aðr- ir höfðu slegið niður gamla konu og mjaðmarbrotið hana. 77 ára gömul kona, sem rætt var við hafði lent i þvi fyrir stuttu, að tveir 12 ára stráklingar slógu hana niður fyrir utan aðaldyrnar að blokkinni þar, sem hún bjó, og drógu hana spölkorn í veskis- ólinni hennar. „Ég hef verið með lifið í lúkunum upp frá þvi“, sagði hún. „Ég er dauðhrædd. En ég hef ekki efni á þvi að búa annars staðar en hérna. Ég kemst hvergi. Hvert ætti ég svo sem að fara?“ Mannslífið á 17 cent Það er svipað ástandið i Oakland og hinum borgunum tveimur. 1 fátækrahverfin safnast af henni veskið, sem hún hélt á. Hún féll við og hlaut mikið höfuð- högg. Hún lézt fjórum timum sið- ar. En i veskinu, sem pilturinn stal, voru 17 sent (33 kr.). Ekki er langt liðið frá þvi, að lögreglan í Oakland kom höndum yfir flokk' unglinga, sem höfðu iðjað það lengi að ráðast á og ræna gamalt fólk í Oakland. En flestir þeirra voru yngri en 18 ára, þegar þeir voru dæmdir, verða von bráðar látnir lausir og geta þá tekið aftur til við fyrri iðju. Saksóknari i Oakland komst svo að orði í viðtali, að það væri leitt til þess að vita, að eina ráðið til þess að koma i veg fyrir glæpi væri að læsa glæpamennina inni. „Það er ekki nema tvennt, sem kemur til greina. Annað er að leyfa þeim að ganga lausum svo, að þeir geti haldið áfram að lim- lesta fólk. Hitt er að hneppa þá i fangelsi. Um annað er ekki að velja“. Aldrað fólk í fátækrahverfum stórborganna á vist i engum vanda að velja. — Ur „TIME“. gamalt fólk. Varla sést maður á ferli á götum úti; gamla fólkið hirist inni, hefur dregið fyrir glugga og fer ekki út nema til- neytt. Algengt er að sjá rammger- ar járngrindur fyrir gluggum og nokkra lása á hurðum i útidyrum. Grimmd sumra þeirra, sem leggjast á gamalmennin, virðast litil takmörk sett. 91 árs gömul kona i Oakland varð fyrir þvi, að unglingur brauzt inn til hennar. Hún hefur varla komið miklum vörnum við, en samt var engu líkara, en árásarmaðurinn hefði átt lif sitt að verja þótt hitt muni sönnu nær að hann hafi verið óvanalega kaldrifjaður. Gamla konan fannst látin á stofugólfinu heima hjá sér og hafði verið stungin margoft með hnífi. Talið er, að morðinginn hafi ætlað að ræna hana — en lögreglan kveðst þó ekki sjá, að hann hafi haft neitt á brott með sér. önnur kona, rúmlega sjötug, var á gangi fyrir utan blokkina þar, sem hún bjó. Hljóp þá að henni 16 ára strákur og hrifsaði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.