Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1971, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 29.08.1971, Blaðsíða 1
ÚR ÆVIMINNINGUM BJÖRNS KRISTJÁNSSONAR Fyrir nser tveimur árum kom dr. med. Halldór Hansen eldri að máli við mig og sagðist hafa ævisögubrot föður síns, Björns Kristjánssonar, fyrrv. ráðherra, undir höndum. Sagði hann að mér væri heimilt að notfæra mér handritið að vild og jafn- framt að prenta valda kafla úr því í Les- bókinni. í ritgerð, sem ég skrifaði um Sjálfstæðisflokkinn gamla, studdist ég lítil- lega við handritið sem heimild og í grein, sem ég skrifaði í páskahlað Morgunblaðs- ins á sínum tíma, studdist ég einnig við ævisögubrotið, eða frásögn þess af svoköll- uðu „þjófnaðarmáli“, þegar Björn Krist- jánsson á barnsaldri var að ósekju grtin- aður um óráðvendni, en pólitískir and- stæðingar hans notuðu sér það síðar meir til að hreyta að honum brigzlyrðum. Ástæðan til þess að ég þá skrifaði grein um mál þetta var sú, að augljóst var að Björn Kristjánsson hafði tekið nærri sér að þessi gamla saga úr hernsku hans skyldi vera notuð gegn honurn á þennan hátt. Af þessum sökum er ekki ástæða til að prenta upp þann kafla í æviminningum hans, sem um þetta mál fjallar. Ævisögubrot Björns Kristjánssonar eru stórmerk heimild um stórmerkan mann og samtíð hans. Þykir Morgunblaðinu mikill fengur í þessu lesefni, sem birtist í næstu tölublöðum Lesbókar. Morgunblaðið kann dr. Halldóri Hansen og öðrum ættingjum Björns Kristjánssonar miklar þakkir fyrir leyfi til að birta ævi- sögukaflana og þær myndir, sem þeir hafa látið í té og fylgja munu köflunum. Matthías Joliannessen. FÆÐINGARSTAÐUR OG FOBELDRAB Ég er fæddur 26. febrúar 1858 að Hreiðurborg í Sandvík urhreppi í Árnessýslu. Fóreldr- ar minir voru Krist ján Vem- harðsson (hafnsögumanns) í Garðbæ á Eyrarbakka og Þór- unn Halldórsdóttir Guðmunds- sonar í Þorlákshöfn. Foreldrar minir áttu 6 börn, eru nú 1939 aðeins 2 á lifi, ég og Kristján, sem fór innan við tvitugs aldur til Winnipeg í Kanada. Hin börnin voru: Halla, sem giftist í Reykjavík og dó ung, barn- laus. Vernharður, sem giftist og bjó lengi á Höfi á Kjalarnesi og dó þar, átti 5 börn. Hall- dóra,. fluttist vestur um haf til Seattle, giftist þar, átti 5 böm og lézt þar. Gissur, sem drukknaði um ‘tvítugt í Þor- lákshöfn. Faðiir minn var meira gefinn fyrir sjómennsku og ferðalög en sveitabúskap og var heljar- menni að burðum. Móðir mín annaðist þvi að mestu leyti bú- skapinn heimafyrir, og upp- eldi bamanna, enda var hún dugmikil, trúuð og prýðilega greind og skáldmælt. Föðurbróðir minn, Björn Vernharðsson, var einnig helj- armenni og méð stærstu mönn- um. Hann og föðursystir mín, Hólmfríður, bjuggu með föð- urömmu minni Sigríði Bjarna- dóttur í Garðbæ. Fleiri systur átti íaðir minn ennfremur, Ragn'heiði, sem bjó að Skúms- stöðum á Eyrarbakka, sem merkisfólk er af komið, og Sig- ríði, sem giftist Bjarna Jóns- syni að Gottorp í Húnavatns- sýslu. FEB FRÁ FORELDRUM MÍNUM Aldrei var mér Ijóst hvers vegna ég fór frá foreldrum mín um þegar ég á 6. árinu fór að Garðbæ á Eyrarbakka til Björns Vernharðssonar og ömmu minnar. En á þorra, þetta aldursár mitt, fór faðiir minn með mig fótgangandi nið- ur á Eyrarbakka. Var veður þá stillt og bjart og snjór yfir öl'lu. Á þessu nýja heimili var ég borinn á höndum og ekki leið á löngu, áður en föðurbróðir minn fór að kenna mér að lesa og skrifa. Bærinn Garðbær stóð rétt hjá húsi verzlunarstjórans við Lehfólisverzlun, Guðmundar Thorgirimsen, sem var mjög barngóður og heimili hans allt, enda var alimannairómur að Thorgrímsen væri mesta göfuig menni. Hann var og stór og tígulegur maður, sem allir báru virðingu fyrir. Ég varð nú nokkurs konar heimagangur i húsi verzlunarstjórans. Ekkert markvert gerðist næstu árin annað en það, að ég fór brátt að vinna að sölva- tekju, og að hirða um sölin, því sölvatékja var þá mikil á Eyirarbakka. Sveitamenn keyptm þá mikið af sölvum, að- allega fyrir smjör. Var sölva- vættin (40 kílógr.) að mig minnir seld fyrir 1 fjórðung (5 kiilógr.) af smjöri. Auk þess vann ég við að hirða um mó, tina rekaþang í eidinn o.s.frv. Róið var á þeim tíma á Eyrar bakka með lóð, vetur og vor og

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.