Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1971, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1971, Blaðsíða 1
Argentínska skáldið, Jorge Luis Borges, sem kom ekki álls fyirir löngu í pilagrímsför til íslands, er nú um stundir einn þekktasti rithöfundur á spœnska tungu. í mýútkomnu sjálfsævisöguriti segir hann á einum stað: „Enn einn dag- draumur minn er að fara píla- grímsför til Islands. . .“ Nú hef ur sá draumur rætzt. f Morgunblaðinu 15. apríl s.l. reyndi ég að gera nokkra grein fyrir manninum og skáld inu og studdist við samtal, sem ég hafði átt við hann. Daginn sem hann kom birtist einnig i Morgunblaðinu grein eftir Guð berg Bergsson, rithöfund, skýr mynd og skemmtiieg af þessum einstæða Argentínumanni, sem tekið hefur ástfóstri við land okkar og menningu. 1 för með Borges vaf amer- iskur þýðandi hans, Norman Thomas di Giovanni, sem hugs- aði um þennan blinda meistara sinn af ástúð og umhyggju, sem engum duldist. Di Giovanni hefur ritað upplýsandi grein í brezka menningarritið Encount- er (apríl 1969) : Hvernig er að vinna að þýðingum me.ð Borg- es? Grein þessi lýsir þeirri miklu vinnu sem lögð hefur verið í. að þýða verk Borges á enska tungu, bæði ljóð hans og sögur. Þess má geta að í grein þessari er minnzt á konu Borg- es, en þau hafa síðan skilið. „Samband okkar var ekkert sem skipti máli,“ sagði Borges við mig, beizkjulaust að mér virtist, en þó getur Giovanni þess sérstaklega í grein sinni að skáldið hafi einhverju sinni þegar di Giovanni las uppköst að þýðingum fyrir hann, gripið fram í: „En þetta er gott" eða „Þetta er betra en á frummálinu. . . “ og stund um hlaupið til konu sinnar, sem var i næsta herbergi, og veitt henni hlutdeiid i gleði Um Borges á Islandi Eftir Matthías Johannessen

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.