Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1965, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.10.1965, Blaðsíða 1
Eftir Thor Vilhjálmsson Meðfylgjandi kafli er úr hinni giæsilegu Kjarvals-bók Xlior Vil- hjálmssonar, sem kom út lijá Helgafelli 1964. Hann er birtur í tilefná af áttræðisafmæli Kjarvals í fyrradag:. í HEIMI listarinnar eru gamlir hlutir á ihvörfum. Byltingin geisar gegn hinum klassísku viðhorfum. ómurinn berst jafnvel til Norðurlanda þótt þeir séu seinir að taka við. sér þar. Van Gogh og Gauguin höfðu verið sýndir í Danmörku upp úr 1890, þá þótti inönnum ekkert í þá varið þar en nú eru ýmsir þarna að skamma forfeður sína í Danmörku fyrir að 'hafa ekki •keypt upp þessar myndir sem þá buð- ust fyrir lítið fé en eru nú alltaf að sprengja metin á hinum frægu mál- vefkauppboðum. • Það er gömul saga, ætli hún sé ekki ennþá ný. En upp úr 1905 var óhætt að láta þessa menn slá í gegn í Kaupmanna- höfn, og þá var uppi eldur í hugum þeirra sem þeina hlutum sinntu. Norð- urlönd eignast loksins málara í heims- sniði, Norðmanninn Munch. En sú skelf- jng sem laust mæta fulltrúa grandvar- leikans og bara venjulegt fólk við að sjá myndir þessa voðalega Norðmanns sem skeytti engu um leikreglur listáskól- anna, og leyfði sér að mála hlutiná öðru- yísi en allir sáu að þeir væru, og skáld- ■ aði bara einsog honum sýndist í stað- inn.. Honum var mest í muna að gjósa geðróti sínu á strigann. • Af öllum Norðurlandamá.lurum hygg ég að þessi norski málari sé skyldastur Kjarval í skaphita og geðofsa. En Kjarval er miklu margslungnari, þættirnir í listgáfu hans fleiri og öflugri, hann syngur á fleiri strengi, list hans er fjölbreyttari og ríkari. Munch varð einn helzti fulltrúi ex- pressjónismans, þessarar málarastefnu sém breiddist óðfluga út einsog gárar frá rótinu sem Van Gogh og Gauguin höfðu vakið. Þaðan spruttu greinar í ýmsar áttir; þetta er einskonar frelsishreyf- ing þar sem listamaðurinn heimtar rétt til að beila þeim brögðum sem honum þóknast til að koma skáldskap sínum til skila, hann yrkir hispurslaust á dúk- inn. Hann er ekki bundinn við sannan- lega lengd og breidd hlutanna á mæl- ingarfræðivísu, hann getur teygt og tog- fið einsog tilfinningin krefst og skáld- mið hans. Það mætti nefna nokkra expressjón- iska stórmálara á ýmsum stöðum í Ev- rópu á svipuðum aldri og Kjarval eða heldur eldri sem hafa drukkið af sömu lind en þróazt ólíkt, hver með sínum hætti til fullnaðar í sérpersónuleika sin- um einsog Kjarval sjálfur: Kokoschka sem va*ð óhemjumagnaður um skeið þótt í seinni tið hafi það dottið niður; rússneski gyðingurinn Chagall, sem hef- ur setið í París og verið að yrkja töfra- fullar draumsýnir þar sem tregasæl lýr- . ik svifur 3étt án þess að þurfa að slá vængjum títt; Paul Klee .... Ailir hafa þessir menn orðið snortnir af sama straumi frá Van Gogh. Auðvitað gat ekki farið hjá því að maður með næmleik Kjarvals skynjaði sterkt þessi umbrot. Hann fann hvern- ig hlutirnir ólguðu og nýtt líf brumaði. En hann fann líka aðstöðumuninn sinn og lislamannanna sem komu upp í lönd- um þar sem margar aldir af hefð voru í senn grundvöllur til að byggja á og hættur að berjast við. Áhrifin steyptust yfir hann, sk;> ldi hann ekki oft hafa staðið á öndinni? Gáfur hans og geð- riki, krafturinn sem svall í honum, ef- laust veit hann að þar stendur hann ek.ki lakar að vígi en hinir. En hann finnur hvernig hann verður að vinna upp Islands tapaða tima, aldirnar mynd- lausu. Hann ber ábyrgð á heilli þjóð, að hún verði til í myndlist. Um leið og hann finnur heimsbyltinguna ná til sín, hvernig hann er einn af nýju mönnun- um, skynjar hann einnig að þjóð hans bíður eftir að hann komi heim og leggi hornsteininn að hennar eigin list. Kjarval hlaut að hafa aðstöðumun við hina nýju menn stóru landanna sem höfðu vaxið upp við myndlist og sumir þurftu að berjast við glæsjlega gamla hefð til að ná andanum sínum uþp og eignast sjálfstæði. Þeir þurftu að brjót- ast út úr félaginu eða ganga í byltingar- klíkur til að neita hinni gömlu list sem þeir höfðu margir fengið með móður- mjólkinni. En Kjarval var hinn sjálfst'æði mað- pr sem byggði allt á eigin rammleik, hafði orðið að berjast af öílu afli tíl að komast í færi við listfélagsskap aldanna og hefðin var ekki fjötur heldur ævin- týri, frelsandi og langþráð. Hann hafði byrjað einsog hinn fyrsti maður af und- arlegri þörf í eðlinu að forma fyrir sér skynreynslúna, tilsagnarlaust; og hafði ekki fyrri manna. aðferðir til að stytta sér leið. Hann svarar hinni hvíslandi röddu í brjósti sér og finnur hana vaxa, magnast að hljóm þar til hann fer a'ð greina hin huldu rök sem eru borin a'ð vitund hans. Hann hefur ekki einu sinni séð Mónu Lísu fj'rr en hann var fullorðinn maður og þroskaður af hörðu stríði. Reyndar hafði hann séð Fjallkonumyndina eítir Benedikt Gröndal vegna þess að sú list var utan á kaffipökkum. í öðru lagi gerðist það á unglingsárum hans að í verzluninni skaut upp grönnu limbandi með myndum af dýrum. Sjálfur hefur Kjarval sagt frá hvern- ig honum fór þegar hann kom út í heim- inn, i einskonar afstöð’ulýsingu sem mætti kalla manífestó segir hann árið 1922 þegar hann kom. heim til ís- lands og hafði stóra sýningu á mvnd- unura sem hann hafði verið að mála á undanförnum árum: , Eg kom.á þeim tíma út í heiminn sem reaktíónin, mótstaðan, býrjaði gegn hin- um klassísku skólum og stefnum gömlui Eg var kominn- yf-ir ýngstu árin, én hafði þó lítið lært. Ég var opinn fyrir öllu og tilbúinn til að 'læra af hverju sém var án þess þó að gera mér fyllilega grein fyrir hvernig hollast mj'ndi að byrja. Ahrifin streymdu yfir mig • sem foss marglitra geisla og fannst mér ég vera klettur sem eyddist og molnaði er flóðið Framhald á bls. 11. . (Ljósm. Ol. K. M.).

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.