Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1963, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1963, Blaðsíða 1
Jón Kr. ísfeld: Einu sinni þegar hann var svangur, þreyttur og rennbíautur, klifraoi nann upp á stóran stein, steytti hnefana til himins og formælti Guði fyrir að láta lítinn smaladreng þjást þannig og líða. Þessa formælingu taldi hann fjölskyldu sína þurfa að afplána með fórnum og friðþægingu. — Þessi frásaga um for- mæJinguna telja margir, að muni vera heilaspuni hans, sem orðið hafi til við erfiðleika, sem hann átti við að stríða í einkalífi sinu. En, hvernig sem þvi annars er farið, varð fjölskyldan að líða fyrir þessa synd, hvort sem hún var hugarfóstur eða veruleiki. Þannig var bernskuheimili S. K. þjakað af þunglyndi og bölsýni. Það má nærri geta, að glaðir barnshlátrar hafa ekki fengið að bejgmála innan veggja „Allur heimurinn snýst um S.K.*. (Klæstrup). ára LM miðbik síðustu aldar stóð gífurlegur stormur og styrr í Danmörku og víðar um Sören Kierkegaard. Enginn vafi er á því, að þar var einn af mestu and- ans mönnum aldarinnar. Þó að honum auðnaðist ekki að verða eldri en 41 árs, afkastaði hann ó- grynnum ritverka, svo að fágætt getur talizt. Ég tel ekki aðeins eðlilegt, að 150 ára afmælis slíks manns sé minnzt, heldur sjálfsagt, þótt ekki sé nema í stuttri grein. Að sjálfsögðu getur hér ekki orðið um að ræða nema stutt ágrip af ævisögu þessa merka manns, og helztu ritverka hans minnzt með fáum orðum. I. Hann fæddist 5. maí 1813 í Kaup- mannahöfn. Foreldrar hans voru Mic'h- ael Pedersen Kierkegaard, kaupmaður, og kona hans, Anna Sörensdóttir Lund (en hún lézt, þegar Sören Kierkegaard var um tvítugt). Foreldrar hans voru írá heiðaibænum Sæding við Ringköb- ing oig bæði af bændaættum. Sören Kierkegaard ólst upp á heim- lli foreldra sinna. Frá móður sinni fékk ttiann llítil varatnleg áhrif, en þeim mun meiri frá föður sínum. Úr fátækrt hafði faðir hans unnið sig til allmikilla efna, jþegar drengurinn fæddist, Um all-langt Bkeið hafði hann tiliheyrt þeim söfnuði, eem kallaði sig Bræðrasöfnuðinn og var etrangur í trúarsfcoðunum. Faðirinn llagði á það mikla áherzlu, að synir ttiana fylgdu hinum ströngu kröfum eafnaðarins. Auk þess var faðirinn ákaf- lega þunglyndur og svartsýnn, en það hafði einnig varanleg áhrif á alla í fjöl- skyldunni. Þegar S.K. (Sören Kierkegaard verð- ur skráður svo hér eftir í grein þess- eri) fæddist, var faðir hans orðinn 57 éra, og því aidraður maður, þegar S.K. var enn á barnsaldri. Faðirinn hélt því leyndu fyrir öll- uim, hverja hann teldi ástæðuna fyrir þunglyndi sínu og bölsýni. Taldi hann, að reiði Guðs hvildi yfir fjölskyldunni vegna ægilegrar syndar, jsm hann hefði drýgt, þegar hann var 10 ára. Hann hafði þá verið smaladrengur á józkri heiði. þessa heimilis. S.K. varð því þunglynd- ur undir eins á barnsaldri. Það var að sjálfsögðu fyrst og fremst föður hans að kenna, en einnig bróður hans Peter Christian (síðar biskup), sem var nokkrum árum eldri. Faðirinn gruflaði mikið í heimspeki og dulfræði, en slikt hefir efcki verið auðlskilið né hugþekkt börnum. Þegar þvi S.K. fór í barna- skólann, 8 ára að aldri, hefir skólasyst- kinum hans vafalaust þótt hann „kyn- legur kvistur". Hann fór mikið einförum, Itierkegaard með kunniugja á götu í Kaupmannahöfn en þá sjaldan hann gaf sig á tal við skóiasystkin sín, var hann með heim- spekilegar þrautir og vangaveltur. S.K. varð það raunar fljótlega ljóst, að hann var öðru vísi en önnur börn, og hin við- kvæma barnssál hans særðist við það, svo að hann varð enn einrænni og þung- lyndari. Þannig leið bernska hans í bölsýni og tortryg'gni. Hann hefir sjálfur sagt: „Ég hef aldrei notið þeirrar gleði að vera barn“. II. egar S.K. var 17 ára, innritaðist hann í háskólann í Kaupmannahöfn. Faðir hans réði þvi, að sonurinn innrit- aðist í guðfræðideildina. Hann skyldi gerast þjónn Guðs og þannig leysa ævi- starf af hendi, sem gæti orðið ættinni til aflausnar. En það fór fljótlega svo, að S-K. lagði litla stund á guðfræðina, en þeim mun meir sökkti hann sér nið- ur í heimspekina, t.d. kenningar Hegels, sem hann var einkar hrifinn af. En sam hliða náminu gaf hann sér æði lausan tauminn og lifði í léttúð, sem að sjálf- sögðu var víðs fjarri kristindómi gamla kaupmannsins, föður hans. En þetta létt- úðuga hátterni kostaði mikið og fór svo, að S.K. stofnaði til stórrar skuldar, sem faðir hans varð að greiða. í samkvæmisliifi Kaupmannahafnar og á ýmisum veitingastöðum borgarinnar varð S.K .mikilvæg persóna. Þessa við- urkenningu fékk hann einkum vegna frábærrar mælskusnilldar sinnar, sam- talshæfileika og dulúðuga blæs, sem hvíldi yfir hugleiðingum hans. Þannig leið timinn áfram í stefnuleysi fyrir hinum unga andans óskmegi. En svo kom vorið 1838. Það hefir sennilega verið á 25 ára afmælisdegin- um, að faðir S.K. kallaði son sinn að sjúkraibeði sínurn. Öldungurinn var þá orðinn 82. ára. Þarna sagði hann syni sínum frá því, sem hent hafði fyrir meira en 70 árum, þegar hann sem drengur hefði formælt Guði og þar með leitt bölvun yfir ætt sína. Þar með hafði S.K. verið vígður hinum skelfilega leyndar- dómi. Hann hafði áður grunað, að eitt- hvað óttalegt hefði fyrir löngu hent föðurinn, og það hefði aukið á syndabyrði hans og svartsýni. En nú kom frásögnin eins og reiðarslag yfir hamn, eða eins og hann segir sjálfur, að það hafi helzt líkzt skelfilegum „landskjálfta“. í dag- bók sína hefir hann m.a. ritað þannig um þetta: „Ég fann dauðaþögn um.lykj a mig, þegar ég í föður minurn sá hinn óham- ingjusama mann, sem myndi lifa okkur öll, en hefði fyrir löngu séð grafarkross á leiði allra vona sinna“. Innan fárra daga verðuir mynd hins iðrandi föður til þess, að trúarleg bylting á sér stað í sál sonarins. Þá skrifar hann fagnandi í dagbók sína m.a.: „Til er gleði, sem jafn-óskiljanlega nær að varpa uppljómun í sálir vorar eins og hróp postulans, er hann segir: Verið glaðir, ég segi aftur: verið glaðir". Frá Framihald á bls. 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.