Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Blaðsíða 26

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Blaðsíða 26
506 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS hvernig hús teljast til gatna. Þann- ig er t.d. eitt hús talið við Kirkju- brú í húsvitjunarbókinni, og er það klúbbhúsið, en á tölusetningu húsa við Aðalstræti má sjá, að það hefir átt að vera nr. 4 við þá götu. Aftur á móti er hús, sem stendur við Kirkjubrú talið til Austurvallar. Eins má geta þess, að vestasta hús- ið við Austurstræti er þá talið næsta hús fyrir austan „ísafold“ sem nú er, en húsin þar fyrir vest- an talin til Vallarstrætis. Þá hófst tölusetning húsa í Austurstræti austur við læk, og var talið vestur eftir beggja megin, öfugt við það sem nú er. Að svo mæltu skulum vér þá leggja á stað í húsvitjunina, og til þess að þeir, sem vilja verða sam- ferða og kynnast húsráðendum Reykjavíkur fyrir einni öld, átti sig betur á ferðalaginu, skulum véf byrja á fyrsta húsi í hverri götu og ganga síðan í húsin eftir tölusettri röð þar til komið er á enda. Og er þá sjálfsagt að byrja í fyrstu og elztu götu bæarins. ASalstræti. 1. Þar bjó Eggert Waage kaup- maður, sonur Magnúsar skipstjóra í Stóru Vogum, Jónssonar hins ríka Danielssonar í Stóru Vogum. Magnús hafði tekið sér ættarnafnið Waage og þannig kennt sig við óðal sitt. Hús Eggerts var venju- lega kallað Stýrimannshúsið og stóð á þeirri lóð, er einna fyrst var úthlutað eftir að Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. Þarna voru reyndar tvö sambyggð hús og hafði Eggert keypt þau bæði 1858 og byrjaði að verzla. Kona hans var Kristín Sigurðardóttir stúdents á Stóra Hrauni Sivertsens. Meðál barna þeirra voru þeir Sigurður Waage verslunarmaður og Jens B. Waage leikari, sem margir kannast við. — Nú stendur ekkert hús á þessum stað. 2. Þetta var hið svo kallaða Ein- arsborgarahús. Þarna bjó nú An- ikka Emilia ekkja Diðrik Knudsens snikkara, ásamt dóttur sinni Elínu Sigríði, sem varð fyrsta kona þjóð- skáldsins Matthíasar Jochumsson- ar. Þarna áttu og heima Þorbjörg Sveinsdóttir ljósmóðir og Sverrir Runólfsson steinsmiður, sem bæði komu mjög við sögu Reykjavíkur. 3. Landsprentsmiðjan, upphaf- lega nefnd Bergmannshús, nú Að- alstræti 9. Þar bjó Einar Þórðarson prentsmiðjustjóri með fyrstu konu sinni Guðrúnu Marteinsdóttur. Voru þar hjá þeim synir þeirra Magnús (er varð faðir séra Filip- pusar á Stað á Reykjanesi) og Þórður. Einar eignaðist þrjár kon- ur; með miðkonunni, Guðríði Mag- núsdóttur, átti hann Guðjón prent ara, föður Benedikts G. Waage for- seta íþróttasambandsins. 4. Klúbburinn. Þar bjó þá Niels Jörgensen gestgjafi með börnum sínum þremur. Um þessar mundir eignaðist Jörgensen verslunarhús Einars borgara (tengdaföður Jóns Sigurðssonar) í Aðalstræti, stækk- aði það og hóf þar veitingasölu. Það varð uppistaðan að Hótel ís- land, sem nú er dottið úr sögunni og lóð þess orðin að bílastæði. — í klúbbnum var líka maddama Henrietta Bagger, talin ráðskona, og dóttir hennar og Hendriksens lögregluþjóns í Reykjavík. Bæði Henriksen og mad. Bagger fóru til Kaupmannahafnar og lentu þar á vonarvöl. 5. Þetta var lítið timburhús, sem Davíð Helgason Bergmanns versl unarmaður hafði reist á lóð Ull- arstofunnar, og fékk til byggingar styrk frá dönsku stjórninni. Nú bjó þar Guðrún systir hans og son- ur hennar Jóhann, sem hún hafði átt með Heilmann bakarasveini hjá Bernhöft. Guðrún lifði víst á því að brugga öl og selja, eftir því sem Gröndal segir, en hann segir líka að ölið hafi verið svo vont að það hafi verið nær ódrekkandi. Þarna standa nú Uppsalir. 6. Þar bjó Jón Guðmundsson rit- stjóri og Hólmfríður Þorvaldsdótt- ir kona hans, og voru þá enn heima börn þeirra: Þorvaldur síðar lækn ir á ísafirði, Sigurður síðar fanga- vörður og Kristín, sem síðar gift- ist dr. Harald prófessor Krabbe. — Þetta hús var gamla Lóskurðar- stofa innréttinganna, nú Aðalstræti 16, og stendur enn að stofni, þótt mjög hafi henni verið breytt. 7. Þar bjó Margrét Höskuldsdótt- ir Péturssonar á Bústöðum. Hún hafði fyrst verið gift Einari Jón- assyni verslunarstjóra frá Gili, sem reisti þetta hús 1824 þar sem Spuna stofa innréttinganna hafði staðið. Seinni maður Margrétar var Torfi Steinsson söðlasmiður, en hann drukknaði á sundi í höfninni árið 1858. Sonur þeirra var séra Steinn í Árnesi, en af fyrra hjónabandi Margrétar var Pétur á Felli í Bisk upstungum, faðir frú Guðrúnar Jónasson bæarfulltrúa í Reykja- vík. — Hús þetta var lengi kallað Steinsenshús, en var rifið um 1930 og síðan stendur lóðin auð og ó- byggð (Aðalstræti 14). 8. Það var Biskupsstofan gamla, sem enn stendur (Aðalstræti 10). Þarna bjó Jens Sigurðsson adjunkt og Ólöf Björnsdóttir kona hans, og hjá þeim voru börn þeirra: Þórdís, Guðlaug, Björn, Sigurður, Jón, Bjarni, Ragnheiður, Ingibjörg. 9. Þar bjó Guðrún ekkja Einars Hákonarsonar hattara. Hún var dóttir séra Guðmundar Böðvarsson ar á Kálfatjörn og systir Þorleifs Repps. Hjá henni voru þrjú börn þeirra Einars uppkomin: ísleifur er seinna varð prestur, Ingibjör' og Anna, sem giftist Valgarði Breik.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.