Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Blaðsíða 16
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 696 Einar Bogason frá Hringsdal: Selárdalur við Amarfjörð SELÁRDALUR við Amarfjörð er eitt af merkishöfuðbóium þessa lands. Bárður svartd Atlason,*) hét göfugur bóndi sem bjó þar á 12. öld. Hann var afi Hrafns Sveinbjamarsonar á Hrafnseyri, því Sveinbjöm faðir Hnftfns var sonur Bárðar svarta. Hrafn Svein- bjarnarson á Hrafnseyri er talinn að hafa verið hreinhjartaðasta göfug- menni allra höfðingja, sem uppi vom á Sturlungaöld á íslandi. Hann var lika hinn bezti læknir. Á fyrri hluta Sturl- ungaaldar bjó með sonum sínum í Selárdal ekkja, sem Ragnheiður hét Aronsdóttir Bárðarsonar hins svarta í Selárdal, Ragnheiður húsfreyja í Sel- árdal og Hrafn Sveinbjarnarson á Hrafnseyri vom því bræðrabörn. Seinni maður Ragnheiðar hét Þórar- inn. Áttu þau Ragnheiður marga sonu, og eru þeirrar nafnkenndastir Eyvind- ur og Tómas. Var Tómas Þórarinsson prestur í Selárdal og þótti sómamaður. Var hann þar prestur þegaT Þórður Sig- hvatsson kakali kom í Selárdal í liðs- bón til föður- og bróðurhefndar eftir Örlygsstaðabardaga 1238 En í liðsbón- ina til Tómasar í Selárdal kom Þórður 1242. Á Örlygsstöðum hafði Kolbeinn ungi líka Látið höggva Hrafnssyni tvo Krák og Sveinbjörn frændur Selárdals- bræðra, og þar var líka höggvinn Þórir jökull, sem kvað við höggstokkinn vísuna frægu: „Upp skal á kjöl *klífa.“ Þórir hafði líka verið einn helzti foringi Kópavíkurvíganna sum- arið 1236, þar sem 7 menn vom drepn- ir af liði Órækju, sem lent höfðu vegna storms í Kópavík. Eyvindur *) Bárður svarti var 5. maður frá Geirþjófi Valþjófssyni, sem nam Geiþjófsfjörð ig alla Suðurfirði við Arnarfjörð. bróðir Tómasar var prestur í Haga á Barðaströnd þegar Þórður kakali kom þangað i liðsbónina og tók Þórði mjðg vel, eins og Tómas bróðir hans í Sel- árdal. Eyvindiur var vitur maður og ráðgóður. Hrafn Sveinbjamarson á Hrafnseyri var goðorðsmaður og fór með Seldælingagoðorð, en Seldælir voru alkunnir höfðingjar á Vestfjörð- um og höfðu héraðsvöld og yfirráð helmings eða þar um bil Vestfjarða- kjálkans, en Vatnsfirðingar yfir hin- um hlutanum. Lauk viðskiptum þess- ara Seldælagoða og Vatnsfjarðagoða hörmulega. með bví að Vatnsfjarðargoð inn Þorvaldur Snorrason drap með svikum á næturþeli Seldælagoðann Hrafn Sveinbjarnarson velgjörðamann sinn, en vinsælasta, mann kostaríkasta og göfugasta goðorðsmanninn, sem til var á landinu. Þetta níðingsverk var framið á Hrafnseyri 4. marz 1213, og þykir andstyggilegasta níðingsverk Sturlungaaldarinnar. í sambandi við það, sem ég hefi getið um þessa Seldælahöfðingja, vil ég geta þess, að í Selárdal eru sögð vera fom jarðgöng., sem eru sögð liggja úr bæj- arhúsunum og alla leið i gegnum hinn svokallaða Hólavöll, þar mótaði fyrir útgöngudyrunum. Jarðgöng þessi, sem eru neðanjarðar, og munu nú sjálf- sagt talsvert vera orðin samanfallin, munu vera nokkrir tugir metra að lengd. Munu jarðgöng þessi að öllum líkindum vera frá 12. öld eða frá tím- um þessara Seldælagoða, þó ekki væri óhugsandi að þau væru frá Söguöld. Hér eru áreiðanlega fomminjar, sem fornminjavörður þyrfti að láta rann- saka, og vil ég því hér með beina þess- um orðum mínum til hans, að hann léti athuga jarðgöng þessi. Um jarð- göng þessi hefir aldrei fyr verið ritað. í Selárdal vígði Jón biskup Halldórs- Einar Bogason son kirkju 1330. Gyrðir biskup skipaði 1354, að þar skyldu vera tveir prestar og syngja hvem dag messu. Þar var Maríukirkju og kirkja hins heilaga Péturs postula. Selárdaisprestakall var talið eitt með betri prestaiköllum landsins, með því að Stóra- Laugardalssókn sem náði yfir allan Tálknafjörð var annexía frá Sel- árdal þar hafa því starfað og setið að Selárdal bæði fyrr og síðar á öldum ýmsir merkir prestar og einn þeirra orðið biskup, en sumir þeirra sanm- kallaðir héraðshöfðingjar. Um einn þeirra Bjama prófast Halldórsson, son séra Halldórs Einarssonar prests í Selárdal bróður Gissurar biskups Ein- arssonar og konu séra Halldórs Mar- grétar Hannesdóttuæ héraðstjóra Egg- ertssonar var vísa þessi kveðin: í Sel- árdal vestra, situr einn prestur, / sveig- ir hringa. / Ég ætla hann sé til allra þinga, / afbragð þeirra Vestfirðinga. Séra Bjami var prestux í Selárdal frá 1582—1636. Hann var talinn með lærð- ustu prestum sinmar samtiðar, ör á fé, höfðingi mikill og klerkur góður. Kona séra Bjama var Helga dóttir Einars Gíslasonar merkis bónda í Stóru- Hvestu, Var Björn ríki á Skarði og Ólöf ríka kona hans forfeður hennar. Sá af Selárdalsprestum sem þá tign hlaut að verða biskup var Gísli Jóns- son, sem var prestur í Selárdal frá 1547—1557 eða 10 ár alls. Séra Gísli varð biskup í Skálholti eftir að Marteinn biskup hætti að vera þar biskup árið 1557. Var biskup í 30 ár. Var hann einn af helztu siðabótafröm- uðum landsins og einn af helztu mót-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.