Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.1954, Blaðsíða 8
Baskalandi
Þar byr sfolt þjéð af fornum uppruna o«j heldur
fast við siði og tungumál og þíóðmeiiningu sína
ÞETTA er útdráttur úr grein í „Geographic Magazine", eða ferðasögu
um Baskalönd eftir John E. H. Nolan. íslendingar hafa um langt skeið
haft kynni af Böskum. Kor.iu þeir hingað til hvalveiða fyrrum, og frá
Baskalandi voru Spánverjar nir, sem Ari í Ögri lét drepa fyrir 340 ár-
um. Seinna urðu viðskifti Baska og íslendinga með meiri menning-
arbrag. Bilbao og Santander eru mestar borgir í Baskalandi og þang-
að hefir farið gríðarmikið af islenzkum saltfiski. Hafa kaupmenn þar
verið góðir viðskiftavinir íslendinga.
ÞAR SEM Pyreneaijöllum hallar
niður að Biscay-flóa og báðum
megin við þau, er land Baskanna,
þessa einkennilega og sérstaka þjóð
-flokks, sem einhvern tíma í fyrnd-
inni hefur setzt þar að og tekizt að
varðveita tungu sína og þjóðarein-
kenni, umkringd af tveimur stór-
þjóðum. Menn vita ekki hvaðan
þeir hafa komið, né hvar þeir eru
upp runnir, og máli þeirra svipar
ekki til neinnar tungu sem töluð er
í álfunni. — Þeir nefna sjálfa sig
Eskualdunak og land sitt kalla þeir
Eskual-Herria. Eskuara þýðir á
máli þeirra, þá sem gera sér verk-
færi úr steinum, og af því draga
menn þá ályktun, að þeir sé beinir
afkomendur steinaldarmanna og
tunga þeirra sé eitt af þeim málum,
sem töluð voru á steinöld.
Baskalandið er fjöllótt og hálsótt,
en á milli eru fagrir og gróðurríkir
dalir. Því er nú skift í tvo hluta,
því að landamæri Spánar og Frakk-
lands liggja um það þvert. Á Spáni
nær land þeirra yfir héruðin Gui-
púzcoa, Alava, Navarra og Viscaya
og þar búa tveir þriðju hlutar þjóð-
arinnar. Þriðjungur á heima í
Frakklandi í héruðum þeim, sem
áður nefndust Labourd, Basse Na-
varre og Soule, en kallast nú Dep-
artment of Basse Pyrénées. Ekki
vita menn með vissu hvað Baska-
þjóðin er fjölmenn, en talið að hún
muni vera um ein milljón.
BASKAMÁLIÐ ER
ERFITT
Baskar eru hraustxr menxi og
hafa mikinn metnað. Þeir eru vel
vaxnir og hafa einkennilegt höfuð-
lag. Það er og einkennilegt við þá,
að þeir eru í sama blóðflokki og
hinar vestustu þjóðir álfunnar, svo
sem írar, Walesbúar, Skotar og ís-
lendingar. Sjálfir segjast þeir vera
komnir af Túbal, fimmta syni Jaf-
ets sonar Nóa. „Túbal fór til Evrópu
áður en Babelsturninn var reistur,“
íaskar stunda mikið
sauðfjárrækt, en
fjárkyn þeirra er
ekki hið alkunna
merinokyn, sem
ræktað er annars
staðar á Spáni. Fé
Baskanna er með
grófa ull og það er
harðgert. Baskar
eru annálaðir
f jármenn.