Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.1954, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
41
Ólafur Björnsson, prófessor:
Norræna stúdentaheimilið
í Kaupmannahöfn
FÁAR erlendar menningarstofn-
anir hafa komið svo við íslenzka
menningarsögu sem dönsku stúd-
entaheimilin. Er það eðlileg afleið-
ing hinna nánu tengsla, sem verið
hafa um aldaraðir milli Danmerk-
ur og íslands.
Af dönsku stúdentaheimilunum
er Gamli Garður eða Regensen
það sem almenningi hér á landi
er kunnast, enda hefir það mest
komið við íslenzka menntasögu.
Eins og kunnugt er, nutu íslenzkir
stúdentar um langt skeið forrétt-
inda að því er snerti vist á Garði,
og hafa þau forréttindi haft ómet-
anlega þýðingu fyrir menntun
þjóðarinnar meðan þeirra naut
við. Án Garðsstyrksins hefði senni-
lega ekki nema lítið brot þeirra
íslenzku stúdenta, er háskólanám
stunduðu erlendis, átt þess kost.
Með sambandslögunum frá 1918
féllu niður forréttindi þau, er ís-
lenzkir stúdentar höfðu til Garðs-
vistar, og tók þá að mestu fyrir
dvöl þeirra þar, enda tók nú ís-
lenzka ríkið að veita árlega nokkr-
um þeim stúdentum styrki til
námsdvalar erlendis, er mesta
verðleika voru taldir hafa. En
skömmu eftir það, að vist íslenzkra
stúdenta á Gamla Garði var þann-
ig að heita mátti úr sögunni, var
reist í Kaupmannahöfn annað
stórt stúdentaheimih, „Studenter-
gaarden“ eða Nýi Garður, eins og
það var jafnan kallað meðal ís-
lendinga. Þótt fjárhagsleg fríðindi
væru ekki þau sömu fyrir þá sem
dvöldu á Nýja Garði sem á Gamla
Garði, var þetta nýja stúdentaheim
i]i mjög vistlegt og eftirsótt þar
að dvelja. Hin dönsku stjórnarvöld
stúdentagarðsins nýja sýndu Is-
lendingum jafnan velvilja er þeir
sóttu um dvöl þar, og hafa margir
íslenzkir stúdentar dvalið á Nýja
Garði og eiga þaðan góðar endur-
minningar.
Árið 1942 var svo komið á fót
glæsilegasta stúdentaheimili Dana,
og sennilega þó um öll Norðurlönd
sé leitað, en það var Norræna
stúdentaheimilið eða Nordisk
Kollegium, sem reis] var við
Strandboulevard í Kaupmanna-
höfn. Hafa margir íslenzkir stúdent
ar dvalið þar við þau ágætu kjör,
sem stúdentum þar eru búin, og
þar sem þetta er hið nýjasta hinna
stóru stúdentaheimila Dana og al-
menningi hér á landi ekki svo
kunnugt sem hin eldri, verður hér
nokkuð skýrt frá stofnun þess og
störfum.
Stofnun Nordisk Kollegium
á vegum Nordisk Fjerfabrik
í sambandi við stofnun þessa
sennilega glæsilegasta stúdenta-
heimilis á Norðurlöndum, má það
vekja mesta furðu, að hér er ekki
um opinbera stofnun að r æða,
heldur var það einkafyrirtæki, sem
reisti stúdentaheimihð og hefir
síðan starfrækt það.
Þetta fyrirtæki er Nordisk Fjer-
fabrik í Kaupmannahöfn. Nordisk
Fjerfabrik var stofnuð 1901, en er
nú eitt af hinum stærstu og blóm-