Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1948, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1948, Blaðsíða 1
1. tölublað Sunnudaginn 11. janúar 1948 XXIÍI. árgangur / x r Arni Ola: Ur sögu Laugarness I. BUSTAÐUR HALLGERÐAR LANG- BRÓKAR VERÐUR BISKUPSSETUR LAUGARNESS e,- fyrst getið í Njá’u og á þeirri frásögn má sjá. aö þegar á 10. öld hefur landi þess verið skipt úr landnámsjörðinni Reykjavik, og það, ásamt Engey, verið sjálfstæð jörð. Njáls saga segir, að þeir svnir Ólafs hjalta, Þórarinn Ragabróðir og Glúmur á Varmalæk í Borgarfirði „áttu suður Engey og Laugarnes". Og þegar Glúmur kvæntist Hallgerði langbrók, gaf Þórarinn honum upp Varmalæk til ábúðar, en fór sjálfur að búa á Laugarnesi. Segir sagan að hann hafi þá látið svo um mælt: „Eng- ey skulum við eiga báðir saman . . . en ef jeg lifi þjér lengur, þá ætla jeg mjer Varmalæk“. Fór þetta svo að Þórarinn tók aftur við föðurleifð sinni, því að eftir víg Glúms höfðu þau Hallgerður jarðaskipti og fluttist hún þá suður til Laugarness. ★ Mönnum hefur verið það ráðgáta hvernig á því hefur staðið að Engey og Laugarnes gengu svo skjótt úr eign Reykvíkinga og komust i eign borg- firskra manna. Til þess hafa hlotið að vera alveg sjerstakar ástæður. Eiríkur Briem prófessor gat þess til, að Ólafur hjalti muni hafa átt dóttur Ingólfs Arnarsonar og þeir Varmalækjar- bræður fengið þessar jarðir að erfð- um. Á þessa skoðun virðist síra Jón á Stafafelli fallast í ritgerð i Tímariti Bókmenntafjelagsins 18. árgangi. — Um þetta segir dr. Finnur Jónsson: „Þetta kann að þykja ekki ólíklegt, en verður aldrei annað en getgáta. En sögn Njálu verður ekki rengd með rökum". Það er lang eðlilegast að ætla að Varmalækjarmenn hafi komist að Laugarnesi með mægðum við Reyk- víkinga. En getgáta próf. Eiríks Briems fær tæplega staðist, þegar at- huguð er frásögn Egils sögu, en sú saga er eigi síður trygg heimild en Njála. Þar segir svo: „Stundu síðar en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.