Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1945, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.12.1945, Blaðsíða 3
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 621 Jóhann Sigurjónsson: „ÚR MÍNU HJARTA" ^JJaj-lar úr Irjepum lif Irófur haniJ/óhanneóar á cJfaxamijn Á LANDSBÓKASAFNINU eru geymd nokkur brjef frá Jóhanni Sigurjónssyni til Jó- f I hannesar bróður hans. Eru þau elstu frá skólaárum Jóhanns hjer í Reykjavík, en þau yngstu | 1 skrifuð í Kaupmannahöfn, skömmu áður en hann dó. Á öllum brjefunum má sjá, að Jóhannes f | hefir verið einkavinur hans og trúnaðarmaður, og sá sem hvatti hann til að reyna vængina og i ! vera trúan sjálfum sjer. Eitt af brjefum Jóhanns til hans byrjar svo: „Kærlega, kærlega þakka f f jeg þjer fyrir brjefið vinur; þú ert sá einasti, sem jeg fæ brjef frá, hitt eru frjettamiðar“. Og f I allsstaðar skín í gegn að hann er sá eini, sem Jóhann ber fullt traust til. „Allt er segjandi f f sínum vini“, segir forn málsháttur. — Þessi brjef Jóhanns til bróður síns ætti því að lýsa mann f | inum betur en allt annað. Þess vegna eru birtir hjer stuttir kaflar úr þeim. Þeir sýna mann, f f sem þráir sannleik, kærleik og frelsi. Og „þrátt fyrir allar sveiflur og sundrung, hefir varla f ! nokkur maður lifað og dáið jafn sjálfum sjer samkvæmt og sjálfum sjer samkvæmur og Jó- f f hann Sigurjónsson", segir Gunnar Gunnarsson um hann. Og hann segir ennfremur: „Síðustu f f orð hans voru þau, að hann bað að opna gluggann — svo að sálin gæti flogið frjáls. — Hann f f fór frá engum skuldum sálarinnar". f lllllltlllllMIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIItlllllMMIIIIIMMIIIIIIIMI •11111*1 MIII••MMMMMMMMMIIMMMIIIMMIIMMMIIMMMIMMlMMMMMMMMMIMMIMMMIII Menntun er tilgnngur lífsins. Reykjavík. 29. nóv. 1896 SATT VAR ORÐID, sem þú sagð- ir síðast í brjefi þínu, að það væri þjer að þakka að jeg er ekki „pess- imisti“ og verð það aldrei (jeg þori óhræddur að segja sem svo). .Teg finn það altaf betur og betur dag frá degi, að það er mannsins við- hald að hugsa og að hvert brot á móti náttúrulögmálinu og alt kær- Jeiksleysi hefir sína hegningu í för með s.jer. — Mikil endurnæring er það, bæði að fá brjef frá þjer og éins að skrifa þjer. Það er eins og að koma í hreinna loft þegar jeg má skrifa eins ög jeg hugsa, og sjerílagi þegar jeg má skrifa um það, sem jeg hugsa. — Ó, það er verið að spila á horn úti; andinn eða hugurinn í mjer tekst á'loft við hverja hljómbylgju sem myndast. Það hefir mjer reynst satt, sem þú sagðir mjer, að það væri veru- legra líf í Reykjavík heldúr en heima. .Tá, hjer er sannarlega fleiri mentavegir en heima, og mentunin er tilgangur lífsins, ásamt því að njóta sælu þeirrar, sem hasgt er að fá í lífinu. Kærleiksleysi og illvilji er böl mannkynsins. Reykjavík, 29. jan. 1898. KÆRAR þakkir fyrir góða brjef- ið þitt seinasta. Það veitti mjer mikla gleði og ánægju og mjer fanst jeg vera kominn norður og sæti inni í litla norðurherberginu, og jeg sá þig, kæri bróðir, ljúka upp koffortinu þínu og lesa fyrir mig brjefið frá .meyunni blíðu. — Augu þín tindruðu af sólbjartri gleði, og þá sá jeg að kærleikur- inn , þetta andlega aðdráttarafl, hafði sópað úr huga þjer fornu skýjunum og vafið þig eldheitu örmunum sínum. Jeg sá hvernig brjef unnustu þinnar var ]>.jer eins og kaldur svaladrykur er þeim manni,-sem lengi hefir gengið um þurra sanda og hlásin holt. Svo sá jeg í huganum að þú lagðir brjefið aftur niður og tókst að ræða við mig um kringumstæður þínar og meðbræðra þinna. Jeg heyrði þig segja mjer margt og mikið, sem gerst hafði síðan jeg fór, og við hófum fjörugar samræður um mann lífið og þennan mikla hring alheims ins (hringrás). Við ræddum sem fyrrum um böl og hörmungar þær, sem veslings, veslings, voluðu menn irnir steypa sjer oft og einatt í sök- um vankunnáttu sinnar, viljaskorts og þrekleysis, og um allar þær líð-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.