Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1940, Blaðsíða 4
396 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Dr. theol. Magnús Jónsson prófessor: Smávegis biskup Víd m L Tindamir og flatneskjan egar litið er yfir sögu lands- ins verður það ekki ósvip- að því, er litið er yfir mikið og vítt land af háum tindi. Augað nemur staðar við fá sjerkenni, svo sem háa fjallstinda, mikil vötn eða ár, fjölbygða bæi eða annað slíkt. Hitt alt hverfur í blá- inn og sjest ekki fyr en nánar er að hugað. Af sjónarhóli sög- unnar sjáum vjer fyrst fáa við- burði, er úr hafa skorið um örlög kynslóðanna, stefnur, er hafa sett mót sitt á tímabilin — og svo nokkra einstaka menn, er gnæfa eins og háir tindar úr öldum fram. Einn þessara tinda er Jón biskup Vídalín, eða „meistari Jón“, eins og hann hefir oft heit- ið í alþýðumunni. Um þann tind leikur mikill bjarmi, dálítið rosa- legur að vísu, eins og þar væri útsynningur á ferð, en mikill í litskrúði sínu og svo frábær, að ekki fær dulist, jafnvel ekki inn- an um þá skýjaklakka og óveð- ursský, sem umhverfis hann þyrl- ast. Hann gnæfir upp úr þeim í ljóma sínum, litrófi og tign. Jón Vídalín er uppi á óskemti- legum tíma í sögu vorri og versnandi. Hann er fæddur árið 1666, skömmu eftir erfðabylting- una í Kópavogi, og embættisár hanS á biskupsstóli, 1697 eða 1698 ef talið er frá því er hann tekur biskupsvígslu, og kemur heim til embættis síns, til 1720, er illur tími á flesta lund. Efnahag þjóð- arinnar er farið að hraka óskap- lega undir áhrifum ills árferðis og ókjara í verslunarháttum, og ald- arháttur allur er hroðalegur. Er lítill möguleiki að rekja það hjer, og er þó engum manni vel lýst nema umhverfi hans sje gaumur gefinn að nokkru. Verður því að treysta á það, að þetta sje flest- um nokkuð kunnugt. En hvar sem litið er á umsagnir manna frá þessum árum, kveður við sama tón. „Vont fósturland“. Árni Magnússon, vinur Jóns Vídaiíns, segir t. d. í einu af hrjei'um sínum til Þormóðs Torfa- sonar, að hann fýsi ekki mjög heim til íslands. Hann geti að vísu ef til vill fengið þar vara- lögmanns embætti, en „þar eru við 200 Rixdaler ungefehr (h. u. b.); einginn kann þar af lifa, nema sjái til að gjöra gott partie á íslandi; hvar er það, eða hvörs er vert að binda sig þar niðurf Eg vildi gjarnan allstaðar ann- arsstaðar heldur lifa. . . . Frá ís- landi er ei annað að heyra en alt ilt, svo þar hefir aldrei verra ver- ið . . . .“ Grunnavíkur Jón kall- ar ísland beiniínis „mitt vonda fósturland“. Þetta var hljóðið í þessum góðu mönnum. Árni segir í þessu sama brjefi, að þeir, sem í íslandsferðum sjeu, telji ráðlegra að taka heldur hvaða hringjarastöðu, sem fást kynni í Danmörku, en að fara til ís- lands. „Biskup sunnanlands (Þórð- ur Þorláksson, fyrirrennari Vída- þns) sagður í temmilegum skuld- um við Danska“. Svona var þá búið að biskupinum. Var þetta tóm óþjóðrækni og illgirnif Ekki skal jeg um það dæma, en líku máli tala þings- vitni, er tekin voru víða um land ið, áður en Gottrup lögmaður fór ferð sína á konungsfund 1701. Um Mulasýslu segir t. d.: „Hjer hryn- ur fólkið hvað ^ftir annað niður úr hungri og dýrtíð, og ekki minn- ast elstu menn hjer í sýslu þess, að annað eins árferði hafi yfir gengið jafnlengi og samfelt. . . . Prestar og þjónar Guðs orðs eru nú einnig komnir á vergang“. Um Skagaf jörð segir t. d.: „Hvað við víkur dauða fólks hjer í Hegranessýslu úr hungri og dýr- tíð, þá getum vjer ekki lýst því eins og það raunverulega er, því að það hrynur daglega niður af hungri, hraðar en svo að tölu verði á það komið jafnharðan, og er ekkert, svo að vjer fáum sjeð með augum vorum, fram undan (svo framarfega sem Guð og kon- ungurinn ekki líkna oss í neýð vorri) en að þjóðin (einn með öðrum) deyi alveg út af hungri og landið leggist algerlega í auðn“. Jafnvel þótt vjer drögum eitt- hvað frá þessu fyrir barlóminum þá verður samt eftir mynd af ægilegri neyð. Enda staðfestir saga næstu tíma það fullkomlega, og jarðabók Páls og Árna gefur góða skýrslu um það, hve öllu var hrakað hjer á landi. Drykkjuskapurinn. Annað var í raun og veru eftir þessu. Drykkjuskapur var hroða- legur. Höfðingjarnir voru blind- fullir að dæma og rexa um mál manna á Alþingi ekki síður en annarsstaðar. Raben stiptamtmað- ur segir t. d.: „Nokkrir af þeim, sem alþing sækja, og það einkum menn af hærri stjettunum, koma þangað til að gegna málum drukknir og vitlausir og eins og óarga dýr .... Það er með öllu gagnstætt vilja konungs, að menu þjóni rjettinum dauða-drukknir og eins og skynlausar skepnur“. Og almúgamenn notuðu helst það litla, sem þeir gátu sjeð af til þess að drekkja raunum sínum fáa daga í því ódýra brennivíni, sem jafnan fjekst í búðum einokunar- kaupmanna, þó að hörgull væri á flestum öðrum vörum. Það er nokkurt merki um ald- arháttinn, að annar eins dólgur og Oddur Sigurðsson skyldi geta vaðið uppi jafnlengi og raun var

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.