Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1934, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 20.05.1934, Blaðsíða 1
JWorgtutMaifoitið 21. tölublað. Sunnudag'inn 20. maí 1934. IX árgangfur. I ••foldi«rpr«r.f.»inlðJ» k.f. KRISTLEIFUR ÞORSTEINSSON : Dapurlegt feröalag ú Mývafnsöræfu Frá 1887 til 1922 bjó sá maður á Kleppjárnsstöðum í Reykholts- dal, sem Guðbrandur hjet, Guð- mundsson Sigmundssonar í Geirs- hlíð, Þiðrikssonar. Kona Guð- mundar Sigmundssonar og móð- ir Guðbrands var Sigriður Brandsdóttir bónda á Kleppjárns- reykjum. Guðbrandur var fædd- ur á Kleppjárnsreykjum um 1860. Þar bjuggu þá foreldrar hans. Ung'ur misti hann föður sinn. Um fermingaraldur fór hann að Hjarð arholti í Stafholtstungum til Teódórs E. Jónassonar sýslum. og' dvaldi þar nokkur ár. Þaðan komst hann norður í Skagafjörð og lærði söðlasmíði á Norður- landi. Var hann nokkur ár á Neðra-Asi í Hjaltadal hjá Gísla bónda, föður kandidats Ástvaldar S. Gíslasonar. Guðbrandur fekk þeirrar konu á Norðurlandi, sem Guðrún hjet, Jónatansdóttir, ættuð úr Eyja- firði. Þau byrjuðu búskap á Kleppjárnsreykjum við lítil, eða engin efni og áttu við efnileysi að stríða alla tíð. Hann var leiguliði þar, móðurbróðir hans, Kristófer Brandsson, átti þá Kleppjárns- reyki.. Ljet Guðbrandur son sinn heita Kristófer, í höfuðið á frænda sínum. Gaf þá gamli Kristófer nafna sínum jörðina, því sjálfur var hann ógiftur og barnlaus.* * Það var Kristófer Guðbrands- son, senf seldi jörðina Kleppjárns- reyki undir læknisbústað. Síðan hefir verið þar læknissetur. Eins og lengi hefir við geng'ist með fátæka bændur, var Guð- brandur í litlum metum í sveit sinni og var þó margt vel um hann. Hann var slitviljugur, ráð- vandur og sívinnandi. Stóð hann jafnt hvort veður var fært eða ófært við túnasljettur haust og vor og vetra ef þýð var jörð. Með þessu kappi sljettaði hann næst- um alt Kleppjárnsreykjatún, sem var einn kargamói, er hann byrj- aði þar búskap. Hvorki var hann verksjeður nje hagsýnn og fyrir það tvöfaldaðist oft hans mikla strit. Það heyrði jeg sag't um Guð- brand, að þrátt fyrir hans mikla vinnukapp, væri það einn virk- an dag í árinu, sem hann tók sjer aldrei verk í hönd, en bjó sig upp á sem á stórhátíðum og helt kyrru fyrir. Þetta var á fimtu- daginn fyrstan í jólaföstu. Fæstir vissu hverju þetta sætti, en þeir, sem best vissu, heldu hann hefði þann dag bjargast úr einhverjum nauðum. Ef svo hefði verið, sýnd- ist mjer þessi þakklætisvottur um lífgjöfina vera vel við eigandi. Til þess að vita hið sanna í þessu máli leitaði jeg til Guðbrands með upplýsingar. Sagði hann mjer þá eftirfarandi ferðasögu. Var það síðasta árið, sem hann lifði, og voru þá 40 ár liðin frá því sag'an gerð- ist. Má búast við að bæjanöfn, eða dagleiðir hafi eitthvað skolast til I I í minni lians. Allir aðalþættif sögunnar eru bókstaflega sannir. Saga Guðbrands. Saga Guðbrands er á þessa léið eins og hann sagði mjer hanai Það var vorið 1883 að jeg fór frá Neðra-Ási í Hjaltadal og aúst- ur á Mjóafjörð. Þar rjeðist jeg til Konráðs bónda Hjálmarssonar á Brekku. Þar var jeg í þrjú miss- iri við góða líðan. Samt fór mig að langa til þess að leita aftur til Skagafjarðar. Rjeði jeg af að leg'gja upp fótgangandi síðustu daga nóv. 1884. 1 fylgd með mjer rjeðist unglingsmaður, Sigurður að nafni, Einarsson af Akranesi. Foreldrar Sigurðar voru Einar Einarsson frá Presthúsum, bróðir íþróttamannsins, Halldórs á Grund á Akranesi. Einar druknaði með allri skipshöfn á beitifjöruferð í Hvalfjörð vorið 1877, en Halldór bróðir hans druknaði 1884 í Hoff- mannsveðrinu. Kona Einars og móðir Sigurðar var Guðrún Jóns- dóttir frá Norðtungu Þórðarsonar. Nú leggjum við upp tveir einir. Gengum við til Seyðisfjarðar á laugardegi. Þar áttum við von á tveim Skagfirðingum, sem við ætl- uðum að fá til samfylgdar, sem okkur reið mikið á, því hvorug- ur okkar þekti þá leið sem lá frá Seyðisfirði til Skagafjarðar. En þegar til Seyðisfjarðar kom voru Skagfirðingarnir farnir heim á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.