Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1933, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 16.07.1933, Blaðsíða 1
Nýjatestamenti Odds Gottskálkssonar. Eftlr dr. Jón Helgason. Ljósprentuð útgáfa af elstu prentaðri bók á íslensku. Út- gefandi Sigurður Nordal prófessor; á kostnað bókaversl- unar Levin & Munksgaard. Titilblað Odds Nýjatestamentis. Það er merkisviðburður í sögu íslenskrar bókfræði, að vjer höf- um nú eignast nýja eftirprentaða útgáfu Nýjatestamentisins í þýð- ingu Odds Gottskálkssonar. Flest- allir kannast við þá þýðingu af orðspori, en þeir eru sárfáir ís- lenskra manna á vorum tímum, sem nokkru sinni bafa handleikið bana eða augum litið. Því að Nýjatesta- menti Odds er nú orðið svo sjald- gæf bók, að lærðum mönnum, sem það hafa rannsakað, telst svo til, að ekki sjeu til í veröldinni, það menn viti, nema ellefu eintök, og aðeins þrjú þeirra í heilu lagi. A Landsbókasafni voru geymast þau tvo eintiik hennar, sem ti| eru hjer á landi, og vantar nokkur blöð í bæði eintökin. Er annað þeirra eign safnsins, en iiitt að rjettu lagi eign Háskóla vors eða guðfræðideildar lians sem arftaka prestaskólans, en fengin Lands- bókasafni til geymslu af Þórhalli Bjarnarsyni (síðar biskupi) er þá var forstöðumaður skólans. Þetta síðarnefnda eintak afhenti Sigurð- ur Melsteð lektor föður minum sem gjöf til skólans, þá er Mel- steð, haustið 1885, ]jet af forstöðu )ians. En blöðin, sem vantaði í ein- takið eftirritaði sjera Lárus sál. Halldórsson (frá Breiðabólsstað á Skógarströnd) með svo mikilli snild, að fæstum mundi detta í hug, að þau væru handskrifuð, ef ekki yrði gerð pappírsins til að Ijósta 'J)ví upp. En nú er komin á bókamarkað- inn ný útgáfa þessarar afarsjald- gæfu bókar i svo nákvæmri eftir- gerð (facsímile) að ekkert skilur á milli frumútgáfunnar og hinnar endurprentuðu, annað en pappír- inn. — Eigum vjer þessa oftir- gerðu útgáfu Odds að þakka mjög lofsamlegum áhuga danska bók- ralans Ejnar Munksgaard, sem áð- ur' hefir gefið út samskonar eftir- myndir íslenskra skinnbóka (t. d. Flateyjarbók) með formálum eftir íslenska fræðimenn, og með því

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.