Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1928, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 11.11.1928, Blaðsíða 1
^2 Bruninn mikli 2^ í Kaupmannahöfn 20.-23. október ]728. Eftir ðr. Hannes eorsteinsson þióðskjalauörð. Stærsti eldsvoðinn, sem komið hefir í Kaupmannahöfn, varð eins og mörgum mun kunnugt, fyrir 200 árum, iiófst 20. október 1728, miðvikudagínn síðastan í sumri eftir íslensku tímatali. Kviknaði fyrst í húsi matsala (fleskmang- ara) nokkurs nálægt Vesturhliði (Vesterport) kl. 7 um kvöldið. — Var þá vindur livass á útsunnan með regni allmiklu. Gat slökkvi- liðið ekki hindrað útbreiðslu elds- ins, enda kvað margir liðsmenn hafa verið ölvaðir eftir nýaf- staðna slökkviæfingu nokkru áður sama dag, en lögreglustjórinn varð svo utan við sig af baráttunni við 'teldinn, að hann laumaðist heim til sin með morgunsárinu og drakk sig fullan. Var það og haft eftir Árna Magnússyni síðar, að mak- legt væri, að lögreglustjórinn og „býfógetinn“ væru hengdir á sömu rá, og má af því ráða, að eitthvað meira en lítið hafi verið ábötavant við framkvæmdir yfirmannanna á stöðvun eldsins, margt lent í fumi og fáti, eins og eðlilegt var í slík- um voða. Svo bættist það ofan á, að um miðnætti á fimtudagsnótt- ina kviknaði í ölgerðarhúsi annar- staðar í borginni (nálægt Norður- hliði) og varð sá eldur engu minni en hinn. Varð þá að skifta í tvo staði slökkviliðinu og dælunum. Yar vindur þá genginn til vesturs- útnorðurs og lagði þá eldbálið frá víggirðingunum (Voldene) inn yf- i’ borgina. Verður hjer ekki lýst nánar æð- isgangi eldsins, eða livernig hann hagaði sjer, því að það yrði of- langt mál, og almenningi, sem ekki er kunnugur staðháttum til lítils gagns. En á fimtudaginn (21. okt.) brann meðal annars ráðhúsið, mun- aðarleysingjahúsið (Waisenhúsið), Frúarkirkja,- biskupssetur Sjá- landsbiskups, háskólabyggingin, Frúarskóli, stúdentaheimili Borchs, Garður (,,Regensen“) stúdenta- heimili Elers, og Þrenningarkirkja (það sem brunnið gat), en turn hennar, Sívaliturn, skemdist all- mjög, þótt hann hrapaði ekki, eins og turn Heilagsandakirkju, en sú kirkja brann sama daginn og öll hús þar umhverfis, enda var eld- urinn ægilegastur þann dag, en rjenaði á föstudaginn (22. okt.), og varð loks stöðvaður snemma á laugardagsmorguninn (23. okt.), og hafði þá geysað í 2% sólar- hring samfleytt og lagt í auðn og ösku 3670 hús og 6!) götur, eða % hluta borgarinnar. Tjónið af þessum stórkostlega bruna var auð vitað gífurlega mikið, og fórst þar vitanlega margt verðmæti, sem aidrei hefir orðið' bætt, meðal annars við bruna háskólasaínsins, ei geymt var uppi á loftimi í Þrenningarkirkju. Var þar saman kominn mikill fjöldi fágætra og dýrmætra bóka og handrita, og r.olckrar ágætar íslenskar skinn- bækur, einkum í iiinu svonefnda Rosenssafni, t. d. Eyrbyggja, Fag- urskinna, Heimskringla, þótt Árni hefði áður látið skrifara sína taka aiskriftir af sumum þeirra. Hafði Resen, eins og fleiri ríkismenn í Danmörku á 17. öld (Óli Worm, Chr. Friis, Seefeld o. fl.) fengið hjeðan af iandi ýmsar dýrmætar fornbækur að gjöf, — því að síst vantaði þá dekrið við Danskinn — en bæknr hans, eins og flestra hinna, voru þá komnar í háskóla- safnið og brunnu þar.En skinnbæk- ur þær hinar dýru, er Brynjólfur biskup hafði sent konungi t. d. Codex regius af Sæmundareddu, Flateyjarbók o. fl., vom komnar í bókhlöðu konungs, en þar brann ekki. í Sívalaturni mistu Danir t'i dæmis hinn fræga himinhnött Tycho Brahes, og margt annað fá- gæti. En það sem oss íslendinga varð- ‘ir þó mes't um í þessum stórbruna, er tjón það, sem Árni Magnússon beið af völdum hans. Hversu mikið það hafi verið er ekki fullkomlega ljóst, og frásagnir ekki samhljóða um það, jafnvel ekki að reiða sig á frásögn Árna sjálfs um það, því fið hann virðist bafa orðið svo

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.