Morgunblaðið - 12.11.1957, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.11.1957, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ Sunnan og suðvestan gola, kaldi, skýjað. rrVerðsföðvunarstefnarf ríkisstjórnarinnar. — Sjá grein bls. 11. Hvöt ræðir bæiarmál á fundi í kvöld Gunnar Thoroddsen borgarst'ióri frummælandi SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉL. Hvöt efnir í kvöld til umræðu- fundar um bæjarmál -Reykjavík- ur. Verður Gunnar Thoroddsen borgarstjóri frummælandi á fund inum, sem hefst kl. 8,30 í Sjálf- stæðishúsinu. Eru allar sjálf- stæðiskonur velkomnar á fund- inn. Að lokinni framsöguræðu verða frjálsar umræður. Einnig mun borgarstjóri þá svara fyr- irspurnum, sem fram kunna að koma. Má gera ráð fyrir að kon- ur fjölmenni á fundinn. Á fundinum verður ennfremur kaffidrykkja og leikkonurnar Emilía Jónasdóttir og Áróra Halldórsdóttir fara með nýjan skemmtiþátt. Starfsemi Hvatar stendur nú með blóma. Munu Hvatarkonur þess alráðnar að vinna ötullega að sigri Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórnarkosningunum í vet- ur. Sjúkraflugvöllur tekinn í notkun á Þingeyri 2. NOVEMBER lenti Björn Páls- son fyrstu flugvélinni á ný-gerð- um sjúkraflugvelli á Hólaholtum við Þingeyri. Flaug Björn vél sinni og Slysavarnafélagsins, TF-HI'S Flugvöllur þessi, sem er 300 x 20 m að stærð, var gerður fyrir frumkvæði slysavarnadeildarinn- ar „Varnar“ í Þingeyri, en kost- aður af fé því, er alþingi veitir árlega til þessara þarfa. Nam kostnaðurinn alls um 16.000,00 kr. Þar af kostaði um 10.000,00 kr. að færa til þjóðveg og símalínu, er þarna voru fyrir. Flugvallar- stæðið völdu þeir Björn Pálsson flugm., og Haukur Claessen, fulltr. flugmálastjóra, en umsjón með verkinu höfðu þeir Arni Stef ánsson, hreppstjóri, og séra Stef- án Eggertsson, formaður slysa- varnadeildarinnar. Stefán bóndi Guðmundsson í Hólum lagði fram land undir völlinn ókeypis. Þess má einnig geta, í þessu sambandi, að 23. sept. sl. komu til Dýrafjarðar ýmsir af helztu fyrirsvarsmönnum flugmálanna, Larsen vann Friðrik WAGENINGEN, 11. nóv. — í dag vann Larsen biðskákina við ina við Niephaus úr 7. um- ferð, en Friðrik vann biðskák- iua við Niephaus úr sjöttu um- ferð. Úrslit úr áttundu umferð: Trifunovic vann Clarke, Uhimann vann Stálberg, Hanninen vann Alster og Donner vann Teschner. Úrslitin í níundu umferð: Skák Friðriks og Kolarovs fór í bið, Trojanescu vann Duckstein, Szabo vann Hanninen, skák Teschners og Alsters fór í bið, Stáhlberg vann Donner, jafntefli varð milli Ikovs og Uhlmanns, Trifunovic vann Orbaan, Clarke vann Larsen, Niephaus gerði jafntefli við Lindblom. Vinningsstaðan er þá eftir níu •mferðir: Szabo 8 V2. Larsen 7. Uhlmann og Trifunovic 6í4. Donner 6. Stáhlberg 5Vi. Friðrik Ól. 4‘/2 og 2 biðskákir. Ivkov 4%. Diickstein 4. Kolarov, Teschner og Troian- escu 3j/2 og 1 biðskák. Clarke og Hanninen 3Vfe. Alster 3 og 1 biðskák. Niephaus 2 Vi. Orbaan og Lindblom 1. á einni af Douglas vélum Flug- félags Islands. Flugu þeir mörg- um sinnum yfir flugvallarstæðið og umhverfi þess, og athuguðu gaumgæfilega aðstæður allar. Leizt þeim vel á staðhætti þarna fyrir farþegaflugvöll til fram- búðar. Er það von Dýrfirðinga og nærsveitarmanna, að þarna verði því hið fyrsta hafizt handa um gerð flugvallar, er nægi far- þegaflugi til héraðsins. Verði sá völlur þá liður í framtíðarkerfi flugvalla á Vestfjörðum. Að lokum er þess að f^eta, að þeir, er að flugmálum hafa starf- að hér vestra, telja brýna þörf radíóþjónustu á Þingeyri, núver- andi og vaxandi flugumferð til aukins öryggis og hagræðis. Æskulýðsráð stofnar skákklúbba fyrir ungliiiga ÆSKULÝÐSRÁÐ Reykjavíkur hefur ákveðið að stofna skák- klúbba fyrir unglinga í hverfum bæjarins. Fyrstu klúbbarnir verða stofnaðir á morgun, mið- vikudag kl. 8 e. h. á eftirtöldum stöðum: Ungmennafélagsheimil- inu við Holtaveg, tómstunda- heimilinu að Lindargötu 50 og í félagsheimili ungtemplara að Fríkirkjuvegi 11. Þeir unglingar, sem áhuga hafa á því að gerast félagar mæti á þessum stöðum og hafi með sér töfl. Vilja ekki fiulning að Skálholti EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt samhljóða í Mími, fé- lagi nemenda í Menntatskólanum að Laugarvatni: „Fundur haldinn í Mími, nem- endafélagi Menntaskólans að Laugarvatni, 6. nóv. 1957 lýsir sig andvígan þeirri tillögu, sem komið hefur fram á Alþingi, að flytja Menntaskólann að Laug- arvatni til Skálholts. Einnig skorar fundurinn á Alþingi og ríkisstjórn að beita sér fyrir því, að hraðað verði byggingafram- kvæmdum við skólann, en þær hafa nú legið niðri í nokkur ár. t Vítir fundurinn harðlega það tómlæti, serh ríkisvaldið hefur sýnt þessum málum“. Enn róstusamt austur á Litla Hrauni Gunnar Thoroddsen Drc"ið í Iláskóla- happdrættinu í GÆRDAG var dregið í Háskóla happdrættinu, 11. flokki, en vinn ingar eru 889 og kom hæsti vinn ingurinn 100.000 krónur upp á Vz miða, og að þessu sinni er hvorugur vinninganna í Reykja- vík, en annar þeirra er í umboð- inu á Selfossi, en hinn suður í Sandgerði en miðinn er nr. 33278. Næst-hæsti vinningurinn kom á heilmiða í Vesturveri, nr. 29667. Þá eru fimm 10 þús. kr. vinning- ar: 2890 — 11828 — 12194 — 22413 — 36123. 5000 kr. vinning- ar komu á miða nr. 6778 — 10825 — 33938 — 36177 og 36988. — Aukavinningar eru nr. 33277 og 33279 og koma 5000 kr. í hlut hvors. Það vekur athygli manns hve margir hinna háu vinninga, að aukavinningum slepptum, hafa fallið á miða í 33 þúsundunum og 36 þúsundunum. Launþegadeild Hreyfib segir upp samningum LAUNÞEGADEILD Bifreiða- stjórafélagsins Hreyfils hefur sagt upp gildandi kjarasamningi við Félag sérleyfishafa. — Var samningum sagt upp um sl. mán- aðamót og fellur hann úr gildi 1. desember. Samningsviðræður milli aðila hefjast næstu daga og munu Hreyfilsmenn þá leggja fram kröfur sínar. Hljómleikar UNGFRÖ Steinunn S. Briem hélt hijómleika í Reykjalundi að kvöldi síðastliðins fimmtudags. •Auk heimamanna voru viðstatdd ir allmargir gestir úr nágrenni staðarins og frá Reykjavík. Ungfrúin lék á nýjan Bluthner flygil, sem heimilið hefur eign- azt og var það í fyrsta skiptið, sem á hljóðfærið var leikið. Efnisskrá var sú sama og á hljómleikum ungfrúarinnar í Þjóðleikhúsinu hinn 3. þ. m. Listakonunni var forkunnarvel tekið og henni bárust blómvend- ir. Áheyrendur voru sammála um, að tónleikar þessir væru meðal þeirra glæsilegustu, sem haldnir hafa verið þar á staðn- um. Ungfrú Steinunn sýndi Reykja lundi mikinn sóma, er hún bauðst til að leika fyrir heima- menn staðarins, og er S. I. B. S. henni mjög þakklátt fyrir frá- bæra skemmtun og vináttuvott sýndan sambandinu. EFTIR því sem Mbl. hefur fregn- að hefir enn ekki tekizt að koma á fullri ró meðal fanganna á Litla Hrauni. — Allt síðan um daginn, er þar urðu ólæti mikil og spjöll Sfjórnmálanám- skeið Heimdallar Magnús Jónsson alþm.. talar á fyrsta fundinum um ræðumennsku HEIMDALLUR, F.U.S. hefir á- kveðið að gangast fyrir stjórn- málanaámskeiði fyrir félags- menn sína og hefst það nk. föstu dagskvöld kl. 8,30 í Valhöll. Námskeiðið verður með svip- uðu sniði og undanfarin ár. For- ystumenn Sjálfstæðisflokksins flytja erindi um hina ýmsu þætti þjóðmálanna, kvikmyndir sýnd- ar, málfundir haldnir o. fl. Þeir, sem sækja vilja nám- skeiðið eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu Heimdallar í Valhöll og láta skrá sig til þátttöku. Á fundinum á föstudagskvöld ið mun Magnús Jónsson, alþm., flytja erindi um ræðumennsku. Engin síld - Annar afli vaxandi AKRÁNESI, 11. nóv. — Einn þriggja reknetabáta héðan af Akranesi, sem fóru í róður um helgina, og lagði net sín, kom að landi með engan afla. Hafði hann tvílagt 20 net. Trillubátar hér hafa fiskað vel í dag og á sunnudaginn. Þá var aflinn 500—900 kg., en í dag komst hann upp í 1500 kg. Báturinn, sem héðan stundar ýsunet, komst upp í 4 tonna afla, í dag, en í fyrri róðrum hefur aflinn verið miklum mun minni. —Oddur. Qxnadalsheiði AKUREYRI, 11. nóv. — Undan- farna þrjá daga hefur verið hæg sunnanátt og þíðviðri hér nyrðra. Snjó hefur mjög tekið upp en allmikil fönn var komin hér. Samgöngur hafa mjög batnað í byggð og má telja að færð sé orðin ágæt, Öxnadalsheiði er nú aftur fær, að minnstta kosti stærri bifreiðum. Jörð er hér þíð og er jafnvel verið að grafa fyr- ir nýbyggingum í bænum. — vig. Inflúenzan BARNA- og gagnfræðaskólarnir sér í Reykjavík gátu í gær hafið skólastarfið að nýju eftir nokk- urt hlé vegna inflúenzufaraíd- ursins. Enn er í sumum skólum margt nemenda frá vegna veikinda og mun hafa hæst komiðst upp í 20%. í sumum voru fjarvistir 10—15%, og í enn öðrum ekki tiltakanlega miklar. Þó veikin sé nú augljóslega í rénun, þá tekur veikina enn fjöldi fólks. framin, hafa lögreglumenn héð- an úr Reykjavík verið þar eystra með annan fótinn til þess að að- stoða fangaverðina. Um helgina höfðu fangarnir haft sig mjög í frammi og fóru þá lögreglumenn héðan úr Reykjavík enn á vett- vang. Þá voru þeir fangar sem erfaðst ir hafa verið viðureignar settir í einangrunarklefana, og munu þeir hafa verið 6—8 sem þangað voru fluttir niður. Var þessum föngum gerð grein fyrir því, að frekari mótþrói þeirra væri til- gangslaus, því hann yrði miskun- arlaust barinn niður. Skákmeistaramót Norðurlands SÍÐASTLIÐINN sunnudag hófst á Sauðárkróki Skákmeistaramót Norðurlands. Setti Pétur Hannes- son bæjarstjórnarforseti mótið, en það er helgað minningu Sveins Þorvaldssonar eins efnilegasta skákmanns þessa lands, en hann drukknaði 1934. Á mótinu er keppt í 3 flokkum, alls á 9 borðum. 1. umferð var tefld á sunnu- dag og biðskákum lokið í gær. í meistaraflokki vann Halldór Jónsson, Akureyri, Skarphéðinn Pálsson, Sauðárkróki. Jónas Hall- dórsson, Blönduósi, vann Rand- ver Karvelsson, Akureyri. Jafn- tefli gerðu Þráinn Sigurðsson, Siglufirði og Jón Ingimarsson, Akureyri og sömuleiðis Hjálmar Theodórsson, Sauðárki’óki og Jón Jónsson, Húsavík. I 1. fl. vann Ingólfur Árnason, Sauðárkróki, Kristján Sólmunds- son, Sauðárkróki. Hörður Pálsson Sauðárkróki vann Hjálmar Páls- son, Hofsósi og Ari Rögnvalds- son, Sauðórkróki vann Baldur Þórarinsson, Blönduósi. í 2. flokki vann Kristján C. Magnússon Reyni Guðmundsson' og Maron Sigurðsson vann Hauk Pálsson. Keppendur í 2. fl. eru allir frá Sauðárlcróki. Athugasemd frá Fiskideildinui f fregn, sem birtist í Morgun- blaðinu s. 1. sunnudag, segir, að sérfræðingar þeir, sem nýlega hafi verið við athuganir i Faxa- flóa á verðskipinu Ægi, hafi mælt óvenju hátt hitastig í Faxaflóa og utan hans. Fiskideild Atvinnudeildar Há- skólans vill gera þá athugasemd við þessa frétt, að enginn af sér- fræðingum deildarinnar hafði með höndum umræddar athug- anir á v.s. Ægi, enda var ekki til deildarinnar leitað og þessar athuganir því Fiskideildinni al- gerlega óviðkomandi. Ef rétt er hermt í fréttinni um hitastig í Faxaflóa, þ. e. a. s., að það sé um 7°, má geta þess, að samkvæmt þeim gögnum, sem okkur eru kunn, mun hér ekki vera um óvenju hátt hitastig að ræða miðað við árstíma. Sem dæmi má nefna, að svipað hita- stig mældist síðast í nóvember í fyrra einmitt á þeim slóðum, sem síld hélt sig þá. Sérfræðingar þeir, sem undan- farið hafa séð um athuganir á v.s. Ægi, hafa nú látið af störf- um og í dag lagði Ægir upp i síldarleit og almenna rannsókna- ferð undir stjórn Jakobs Jakobs- sonar fiskifræðings.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.