Morgunblaðið - 23.08.1938, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 23. ágúst 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Bíllinn tekinn upp úr
Tungufljóti í gær
Þar sem
slysið
vildi fil
Við rannsókn kom
í Ijós að gangvjelin
stóð i öðrum gír
Ur lögregluprófunum
Lögreglan gerði í gærmorgnn út menn austur að
Tungufljóti til þess að ná upp bílnum R. 884.
Stjórnaði Ingólfur Þorsteinsson lögregluþjónn
þeim leiðangri.
Ingólfur hafði með sjer kafara og allan nauðsynlegan út-
búnað til þess að ná upp bílnum, en nokkuð af þeim útbúnaði
▼ar þar á staðnum, frá laugardeginum.
Ingólfur naut aðstoðar vega-
nxanna þar eystra til þess að
ná upp bílnum. Það reyndist
mjög erfitt og tók fulla 6 tíma.
Bíllinn lá skorðaður í gjótu
niðri í fljótinu og hallaðist mik-
ið undan straum, þannig að
▼instri hliðin sneri nokkuð upp.
Fremri rúðan á vinstri hlið
var öll mölbrotin, en þeim meg-
f in var stýrisútbúnaður bílsins.
Er af þessu sýnilegt, að bíl-
stjórinn Arnold Pedersen hefir
brotið rúðuna og farið þar út
úr bílnum. Sigurbjörn A. Gísla-
son hefir einnig bjargast þarna
út, því að hægri framhurðin
var lokuð og rúðan þar heil.
Enda lá bíllinn þannig, að ekki
var unt að komast út um
fremri dyrnar, hægra megin.
ViS athugun á bílnum kom
í Ijós, að gangvjelin stóð í 2.
gír.
Lögreglan kom með bílinn til
Reykjavíkur í gærkvöldi.
Sveinn Sæmundsson yfirlög-
regluþjónn hefir nú Iokið við
sína skýrslu í sambandi við
þetta slys. Skýrsla hans er mjög
ítarleg. Verður hjer skýrt frá
því helsta sem fram kemur 1
skýrslu bílstjórans og fyrri
eiganda bílsins.
LÖGREGLURANN
SÓKNIN.
Á sunnudagsmorgun tók
Sveinn Sæmundsson yfirlög-
regluþjónn skýrslu af Arnold
Pedersen bílstjóra.
Hann skýrir fyrst frá aðdrag-
anda ferðarinnar austur og hverj
ir höfðu verið með. hann var ó-
kunnur bílnum að öðru leyti en
því, að hann hafði eitt kvöld
ekið honum suður í Skerja-
fjörð. Hann prófaði og bílinn
kvöldið áður en lagt var af
stað í ferðina austur og virtust
þá hemlar í sæmilegu standi.
Á föstudag var svo haldið
af stað og fyrst ekið austur að
Hraungerði; þaðan upp á
Skeið og Hreppa. Þaðan var svo
haldið vestur yfir Hvítá hjá
Brúarhlöðum og svo sem leið lá
vestur yfir Tungufljót og upp
Rissið sýnir staðhætti við vegamótin
hjá Tangufljóti óg staðinn, sem bíll-
inn fór út a£ veginum.
að Geysi. Bílstjórinn hafði ekki
farið áður yfir Tungufljóts-
brúna og í þetta skifti var orð-
ið dimt, kl. um 10 á föstudags-
kvöld. Var bílstjóranum samt
Ijóst, að vegamótin þarna voru
varhugaverð.
Á leiðinni að Geysi tók bíl-
stjórinn eftir því, að hemlarnir
voru mjög slakir, en hemlar
munu aðeins vera á afturhjólum
bílsins. Á laugardagsmorgun,
áður en lagt var af stað frá
Geysi reyndi bílstjórinn að
lagfæra hemlana eftir mætti,
herti á þeim eins og auðið var.
Hann herti á skrúfunni við
sjálfa hemlana og notaði til
þess skrúflykil.
Var nú haldið frá Geysi, en
staðnæmst í berjamó þar skamt
frá. Þar var haldið kyrru fyrir
til kl. um 12 á hádegi. Síðan
var haldið af stað sem leið ligg-
ur niður að Tungufljóti. Ekki
athugaði bílstjórinn hemlana
sjerstaklega eftir viðgerðina
hjá Geysi, en á leiðinni niður
að Tungufljóti, er hann dró úr
hraða bílsins við lækjarsprænu,
sem hann fór yfir, fann hann
FRAMH. Á SJÖTTTJ SÍÐU
Vegamótin vestan við Tungufljót. Merkið X sýnir staðinn, sem
bíllinn fór út af.
Vísindaleg húsmæðrafræðsla
og þjóðholt mataræOi
Lárus Einarson prófessor talar um
Árósa-háskóla og fslenskan mat
Lárus Einarson prófessor og frú hans tóku sjer
far með Drotningunni í gærkvöldi til Hafnar.
Hafa þau nú verið hjer hátt á annan mánuð,
farið norður í land og fór Lárus með Hákoni Bjarnason
skógræktarstjóra norður Sprengisand.
Morgunblaðið hitti Lárus í gær áður en hann fór, og
barst í tal ýmislegt um Árósa-háskóla, vísindarannsóknir
og fleira.
Háskólinn í Árósum er nú í haust 10 ára, segir Lárus,
og verður efnt til mikilla hátíðahalda í því tilefni, þann 10.
september. Þar verða vitaskuld allir vísindamenn og kenn-
arar er við háskólann starfa. En auk þess verður fulltrú-
um boðið þangað frá öðrum háskólum Norðurlanda og
ýmsum merkum vísindámönnum. Auk þess verða allir
stúdentar, er stunda nám við háskólann, boðnir til veisl-
unnar.
Því endaþótt vísindastarfsemin;
sje aðalatriðið við háskólann, þá
er kenslan og stúdentarnir svo
mikill þáttur í starfseminni, að
þátttaka þeirra þótti sjálfsögð.
-Stúdentalíf í Árósum er mjög
að aukast, eftir því sem skólan-
um vex fiskur um hrygg.
Hve margir stúdentar eru nú
í Árósa háskóla?
Síðasta skólaár voru þeir um
600. Af þeim voru 240 lækna-
nemar.
Deildir háskólans eru nú 8,
læknisfræðideild með rannsókna
stofum sínum, lögfræðideild, þar
sem líka er kend hagfræði, og hin
svonefnda „humanistiska“ deild,
sem hefir sögu, málfræði, bók-
mentir og klassiska heimspeki.
Við þá deild hefir verið komið
upp merkilegu bókasafni um
samanburðarmálfræði. Er þetta
þókasafn eitt af þeim merkari
sem til er í þeirri grein.
Náttúrufræðideild er ekki enn
við háskólann. En rannsóknar-
stofur í eðlisfræði og efnafræði
i eru starfræktar í sambandi við
læknisfræðideildin, auk þess sem
þar eru rannsóknarstofur í „ana
tomi“, lífeðlisfræði o. fl.
ITefir það ekki verið erfiðleik
um bundið að komaupp þessari
miklu vísindastofnun á stuttum
tíma?
Háskólinn hefir verið reistur
að mestu leyti fyrir gjafir frá
einstökum mönnum og stofnun-
um. Állar rannsóknarstofur hans
hafa verið reistar fyrir gjafafje.
Bæjarstjórn Árósa hefir gefir lóð
ina undir skólann og lagt tals-
vert af mörkum til bygginganna.
En flestar og mestar gjafirnar
eru frá borgurum Árósa, en hitt
frá öðrum Jótum. En þegar stofn
anir þessar eru komnar upp, ann
ast ríkið um reksturinn.
Á næstu árum á að koma upp
nýjum rannsóknarstofum við
læknadeildina, þar sem unnið
verður að rannsóknum í
heilsufræði og næringarefna-
FRAMH. Á SJÖUNDtU SÍÐU
SlldveiBillotinn
allur ð miðum
Slæmt veiðiveður
og litill afii
/\ llur síldveiðiflotinn er nú
*■ kominn út á veiðar aft-
ur, símar frjettaritari vor á
Siglufirði í gær. En veiði-
veður er slæmt og erfitt að
ná síldinni, þó hún sjáist
vaða, vegna storms.
Síðan á laugardagskvöld og þar
til í gærkvöldi hafa þessi skiþ
komið með síld til Siglufjarðar;
Björn austræni 200 mál, VenuS
og Nanna 70, Víðir og Reynir 100,
Sæfari Rvík 300. Stella 7(M), Vje-
björn 500.
Síldin veiddist á Skagafirði og
út af Tjörnesi.
Á laugardag voru saltaðar á
Siglufirði 275 tunnur, þar af 235
tunnur réknetasild.
Á sunnudag voru saltaðar 1109
tuhnur, þar áf matjessaltað 286
tunnur. Reknetasíld var þá 721
tunna.
Magnús Gislason
tekur nú sæti
á Alþingi
Magnús Gíslason, sýslumað-
ur tekur nú sæti á Ál-
þingi í stað Guðránar sál. Lár-
usdóttur.
Magnús sýslumaður er þriðji
varamaður Sjálfstæðisflokksins.
Á undan honum voru Eiríkur Ein
arsson og Árni Jónsson frá Múla,
en þeir hafa báðir tekið sæti á A1
þingi í stað Jóns heitins ÓlafsSon
ar og Magnúsar heitins Guð-
mundssonar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir á
rúmu ári mist 3 af sínum lands-
kjörnu þingmönnum, af 5 sem
hann fekk kjörna. En þeir eru
alls fjórir landskjömu þingmenn
irnir af 11, sem dáið hafa á þessu
stutta tímabili, því að Jón Bald-
vinsson, landskj. þm. Alþýðu-
flokksins andaðist s. 1. vetur.
Hefmdarverk
i Palestinu
London 22. ágúst F.Ú.
Enn hafa ýms hermdarverk
verið unnin í Palestínu
og nemur tjón á eignum, þar
sem hermdarverk voru unnin
fyrir helgina yfir 5000 stpd.
Nokkrir menn hafa verið
drepnir undangenginn sólar-
hring, en margir særðust. — Á
staðnum fundust 3 lík Araba í
morgun, sem höfðu verið myrt-
ir.
Herskipið Repulse er nú á
förum frá Haifa og er annað
herskip væntanlegt þangað í
dag í stað þess.
Dr. Alexandrine kom að norðan
í gærmorgun og fór í gærkvöldi
áleiðis til Kaupmannahafnar.