Morgunblaðið - 07.07.1933, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.07.1933, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ 3 f htgtí.: H.1. Arrakur, (•rUaTlki Kltstjörar: Jön KJartanaaoB. Valtýr Stal&naaoa. Kltatjörn og afgralSala: ▲uaturatraetl 8. — Btml 1(08. JLufftyalnraatJörl: H. Hafbarc. Aufftyalnraakrlfafofa: ▲uaturatraetl J7. — Blaal 8700 Xataaacafmar: Jön KJartanaaon nr. 8741. Valt^r Stef&naaon nr. 4880. B. Hafberg nr. 8770. AakrlftarJald: Innanlanða kr. 8.00 á aaAuuVL Utanlanda kr. 8.10 A mlaull, S lauaaaölu 10 aura alntaklB. 80 aura naS IaaMk SiglufjarðardBilan. Svo sem stóð í blaðinu í gæv liöfðn samningamenn af hálfu fjeggja aðila komið sjer saman um samninga um lausn verksmiðju- deilunnar. Samningar þessir eru þó «nn ekki undirritaðir. og er nú "talið óvíst að svo verði, því að deila er komin upp um, hvort, •skilja eigi þá þannig, að með þóknuninni til ráðningaskrifstofu Verkalýðsfjelags Siglufjarðar sje 'Rtofan viðurkend sem hinn rjetti nðili til að ráða verkafólk til verksmiðjunnar, eða þóknunina eigi einungis að skoða sem per- sónuiega þóknun til forstöðu- manns stofunnar. Hið fyrra nær vitanlega ekki neinni átt og er ■ekki hægt að ganga að samning- iunum feiist það í þeim. -.. ♦ » ■»----- Gull-innlausnín. London, 6. júlí. United Press. FB. Fulltrúar Evrópurikja, sem ekki bafa horfið frá gullinnlausn seðla, hjeldu fund í gærkvöldi. Að af- loknum fundinum var búist við ■yfiriýsingu af Frakklands hálfu, sem af mundi leiða að ráðstefn- ainni yrði frestar á fimtudag. Atvinnuleysi minkar. Genf, 5. jíilí. United Press. FB. í fyrsta skifti frá því kreppan 'fór að gera vart við sig sýna skýrslur Alþjóðaverkamálaskrif- stofunnar í Genf, að tala atvinnu- leysingja í ýmsum löndum hefir 'iækkað mikið. Dr. Knud Rasmussen fer til Austur-Grænlands í sumar með mikinn vísindaleiðangur. En um leið ætlar hann að stjórna því, að 'tekin verði kvikmynd mikil, er á að sýna daglegt líf Eskimóa. — Myndin verður tekin í Angmagsa- likhjeraði. — Hún heitir „Brúð- kaupsferð Balbo.“ Vilhjálmur. Við enska blaða- menn hefir Vilhjálmur fyrverandi 'Þýskalandskeisari látið í ljós á- nægju sína vfir Hitler. Honum 'hefir tekist, segir gamli maðurinn í Doorn, það sem engum hefir 'tekist öðrum. 105 ára varð elsta kona Dan- merkur nýlega. Hún er piparmey, misti unnustann fyrir einum 80 árum. Hún heitir Elenora Christ- ensen og á heima í Jydesrup. Sólblettir eru með minsta móti i ár. Geta sumir þess til, að jiess -vegna sje óvenjulega, hlýtt. Frí fligaiBiiHii. Undirbúiö framhaldsflug. Ferð austur yfir Fjall. Veisla hjáforsætisráðherra í gærmorgun snemma fóru allir in. Stjórnandi hennar er kapteinn vjelamenn hinnar ítölsku flug- Biani og meðstjórnendur Ramieri sveitar' inn í Vatnagarða. Var og Aramu kapteinar. byrjað að fylla bensín á vjelarn- J Áttundu og síðustu flugdeild- ar og unnið að eftirliti þeirra inni, sem aftast er í oddafluginu lengi dags. stjórnar Longo liðsforingi, en með- TTm flugferðalag í gær var ekki stjórnendur eru Cammistraci og hugsað, enda ekki sú tilætlunin. |Calo kapteinar. Balbo ráðherra og fararstjóri i * ‘ helt kyrru fyrir fram til kl. 10%. | Klukkan 2 í gær fór Balbo ráð- Þá fór hann á fund forsætisráð- herra og tveir af helstu foringj- herra ásamt Tomasi ræðismanni. jum í sveit hans, Pellegrini og Flugforingjar og aðrir flugsveit- Longo, austur yfir Fjall. Þeim til armenn, er eigi voru bundnir við vinnu sína við flugvjelarnar fóru viða um bæinn og nágrennið. ■— Hafði hver flugdeild sína bíla, er stóðu við gistihús þeirra alla stundi sem þeir voru ekki í notkun. Veðrið var kyrt um daginn, dimt framan af degi, en ljetti til er á daginn leið. Eins og sagt var í blaðinu í gær komu flugvjelarnar hingað nokk- urn veginn í sömu röð og ætlað er samkvæmt skipulaginu. En skipulag flugsveitarinnar er sem lijer segir, þegar eigi dregur sund ur með þeim vegna þoku og þess háttar: Skipulag flugsveitarinnar, Flogið er í oddaflugi og fer Balbo fyrstur. Flugsveitinni er skift í átta flugdeildir og eru þrír flugbátar í hverri deild. Sjerstakur foringi er fyrir hverri deild. Hver deild liefir sitt. auðkenni, í ákveðnum lit, og eru einkennin máluð á flugvjelarnar. Fyrsta flugdeildin, Balbos, er svarta deildin. Foringi vjelar þeirrar er flýgur honum á vinstri liönd er Quesa kapteinn, en sá er flýgur Balbo á hægri hönd, er Biseo kapteinn. Onnur flugdeildin er hvíta og svarta deildin. Foringi hennar er Pellegrini herforingi. Á vinstri hönd hans flýgur kapteinn Miglia, en kapt.einn Borghetti til hægri. Þriðja flugdeildin er rauða deildin. Fyrirliði hennar er kap- teinn Nannini, en meðstjómendur kapteinn Lippi og kapteinn Rovis. Fjórða flugdeildin er hvíta og rauða deildin. Þeirri flugdeild stjórnaði Bandini, sá er steyptist í Amsterdamhöfn. Ljet hann af stjórn, þó eigi meiddist hann að kalla við það tækifæri. Er blaðinu ekki kunnugt um nafn þess er tók við af hon- um. En stjórnendur hinna fhig- vjelanna í þeirri deild voru kap- teinn Leone og kapteinn Teucci. Þá er hvíta deildin hin fimta. Stjómandi kapteinn Giardano og kapteinn Napoli og kapteinn Ver- celloni meðstjórnendur. Sjötta deildin er hvíta og svarta leiðbeiningar voru: Stefán Þor- varðsson stjórnarráðsritari og Kristján Albertson rithöfundur. Nokkrir blaðamenn voru í förinni. Fyrst var farið austur að Grýtu. Gaus hún rjett á eftir að þangað var komið. Síðan var drukkið kaffi í Hveragerði. Þar sat Balbo ráðherra góða stund og spjallaði við samferðafólk sitt um flugið og annað. Hann hafði kent nokkurr- ar þreytu á leiðinni yfir fjallið. En nú var veður að batna og út- sýni gott yfir Suðurlandsundir- lendið. Vildi hann nú sjá meira af landinu. Farið var um Selfoss og austur að Stokkseyri. Kl. 8 var komið til baka. Upprunalega var svo til ætlast að allir flugforingjarnir færu í þessa ferð. En af ástæðum, sem eigi voru gefnar upp, kvaddi Balbo ráðherra flugmenn á sinn fund rjett, fyrir nón, og sagði þeim fyrir verkum í gær, svo þeir gátu ekki farið. Kl. 9 var veisla hjá forsætisráð- herra. Þangað var boðið fyrst og fremst Balbo og mörgum foringj- um úr liði hans, erlendum ræðis- mönnum, embættismönnum ríkis og bæjar, erlendum og innlendum blaðamönnum. TTndir borðum flutti forsætis- ráðherra svohljóðandi ræðu: RæSa Ásffeirs Ásgeirssonar forsætisráðherra. Yðar hágöfgi Balbo ráðherra og aðrir gestir! Vjer höfum beðið eftir yður ítalskir flugmenn með eftirvæntingu — Þegar þetta land var numið komu hjer flotar á sjónum. Hafið og vindurinn bar menn til þessa afskekta lands, sem veitt hefir germanskri sögu at- hvarf í þúsund ár. Feður vorir sigldu til Grænlands og Vínlands hins góða, sem fljótt gleymdist, en fanst þó aftur fyrir framtak og atorku landa yðar, Columbusar. Yðar floti er binn fyrsti, sem fer í loftinu sömu leið og forfeð- ur vorir. Vjer sem búum hjer miðs vegar milli Evrópu og Ameríku fylgjumst hugfangnir með ferð yðar. f gærmorgun hugsuðu allir sem svo: ftalarnir koma ekki í ]iessu veðri. Það var hvasst, veður deildin. Henni stjórnar kapteinn og þokubakkar { hafinu, en Balb Gallo. í hans flugdeiW stjórnar ráðherra og flugfloti hans lagí kapteinn Abbriata annari flug- upp og flugvjelarnar sigldu lm vjelinni. af annari örugt og hiklaust t Sjöunda deildin er græna deild- hafnar. Vjer glöddumst stórleg þegar allir með tölu lentu heilu og höldnu, eftir hraða og hættu- ltga ferð yfir hafið milli írlands og fslands. Vjer dáumst að þessu afrelti, og þegar vjer hugsum nánar um það, skiljum vjer hvílíka kunnáttu og æfingu þarf til að slíkt flug heppn ist. Hver vjel og liver maður er taminn til fullnustu. Fyrirætlanin er djarfmannleg og hefir heppnast. Vjer fögnum því, að þjer eruð komnir allir hjer heilu og höldnu. Þjer eruð góðir gestir. Það er langt og fáfarið milli ítalíu og fslands, og þó hefir menning og viðskifti flogið milli þessara landa um margar aldir. En nú finst oss sem þjóðirnar færist enn nær hver annari. Koma yðar og annara ít- ala á þessu sumri tengir þjóðirnar sterkari menningar- og viðskifta- böndum. Vjer höldum hjer á afskektri eyju uppi fámennu þjóðfjelagi. Hinar miklu fyrirmyndir vorar °ru smáríki Grikklands í fornöld, ítalía á miðöldunum og germönsk þjóðskipun frá alda öðli. Marg- menni gefur oss ekki gildi. — En vjer vonum, að menning, vísindi og listir, að hætti eldri smáríkja, skapi oss tilverurjett meðal þjóðanna. Það er háttur smáþjóða að sýna gestrisni. Og það er ósk vor að sýna yður, meðan þjer dveljið hjer, þá gestrisni, sem þjer verð- skuldið og mest má vera. Vjer byggjum hjer eyju milli tveggja heimsálfa, og óskum þess einlæg- lega að geta orðið yður að því liði og til þeirrar ánægju, sem frekast er unt meðan þjer dveljið á þess- um áfangastað. Þjer komið hjer eftir frækilegt flug og eigið þó erfiðasta áfang- ann ófarinn. Ef vjer mættum ráða, bá skyldi sólin og veðurblíðan fvlgja yður hjeðan til Ameríku og heim aftur. En landstjórnir stýra hvorki veðri nje vindi. TTndirbún- ingur yðar, vjelar og menn ráða mestu um ferðalok. Vjer höfum þegar sjeð, að þar er hver þáttur baulæfður á þessari hættuför. Yð- ar ferð er farin á takmörkum for- tíðar og framtíðar, á takmörkum þess, sem er mögulegt og hugsan- legt. En hvers vegna að hætta lífi sínu í slíkt ferðalag. Já hvers vegna? — Því kann sá einn að svara, sem veit, að sá sem leggur þekking sína, tækni og líf í söl- urnar er brautryðjandinn. Sá sem lifir á takmörkum þess, sem er kleift og ókleift, ryður braut, fram tíðarinnar. Frá því að þetta land var numið hefir engin frækilegri för verið farin, en sú, sem þjer nú eruð lagðir út á. Aður var farið láð og lög. en þjer hyggist að sigra loftin með heilum flugflota. Verið þess fullvissir, að vjer fögn- um yður af heilum lmg og árnum yður allrar farsældar á ófarinni leið. Jeg bið yður að rísa á fætur og lvfta glösum fyrir hans hátign konungi ftalíu, hans hágöfgi signor Mussolini og hinni ítölsku þjóð. Því næst bið jeg vður að lyfta glösum fyrir hans hágöfgi Balbo ráðherra, sem hefir þegar unnið hjarta íslensku þjóðarinnar. En er forsætisráðherra hafði þetta mælt steig Balbo ráðherra upp og mælti á þessa leið: Ræða Balbos flugmálaráð- herra. „Jeg er þakklátur fyrir þau vin- gjarnlegu orð, sem hjer liafa f'allið í minn garð og minna manna. — Vona jeg að hin stutta viðdvöl okkar lijer muni styrkja samband landa vorra, ítalíu og íslands. Fram að þessu hefir samband þessara þjóða aðeins verið versl- unar- og viðskiftasamband. Vona, jeg að hið styrkta samband verði til þess að þjóðir þessar tengist böndum á hinu andlega og menn- ingarlega sviði. Ollum er kunnugur tilgangur ferðar vorrar. Fyrir þrem árum fengum vjer skipun um það að flytja hinum latnesku þjóðum í Suður-Ameríku kveðju frá hinni ítölsku þjóð. Nú höfum vjer fengið skipun um að flytja samskonar vinarkveðjur tii Norður-Ameríkuþjóða. Signor Mussolini, hinn ítur- snjalli foringi og höfundur hins nýja ítalska skipulags, hefir lagt svo fyrir, að slíkar boðsendingar væru eigi fluttar sjóleiðis heldur loftvegu. Vjér lítum svo á, að loftleið sje besta boðleið menningarþjóða. í hið fyrra sinn, fyrir þrem ár- um, fylgdum vjer hinum sólríku leiðum Christofers Columbusar er fann hinn nýja heim. En nú fylgjum vjer köldum leið- um vors gamla ágæta Caboto. Ekki veit jeg hvort hin sama gæfa fylgir oss nú sem á hjnni fyrri ferð. En hitt vitum vjer, að vjer förum með erindi vort í friðarins nafni. Vona jeg, að allar þjóðir skilji hinn góða tilgang vorn, að þar sem flugið er, eru framfaraleiðir, leiðir til þess að nálæga þjóðirnar, kynna þær, og styrkja vináttu- böndin er eiga að girða fyrir hinar hræðilegu styrjaldir. Það er oss gleðiefni að getá sagt, að fascisminn hefir sett frið- armálin efst á stefnuskrá sína. Mjer er ánægja að því, að endur- nýja árnaðaróskir mínar til for- sætisráðherra íslands. Heill sje konungi íslands og Danmerkur, heill hinum íslensku stjórnarvöld- um, heill hinni íslensku þjóð" . Að borðhaldi loknu skemtu gest- irnir sjer um stund við samræður í móttökuherbergjum forsætisráð- herra. Útvarpshlustendur í Englandi voru í maí s.l. 5.576.000. Gler. í París gera menn nú kvenmannsnærföt úr gleri. Fata- efni þetta er ekki ósvipað þvkku silki. Veðmál. Vinnumaður einn á Jót- landi vann veðmál við f jelaga sinn. Hann kvaðst geta skriðið þrjá kílómetra á tveim tímum. Hann skreið spölinn á 95 mínútum. Holdsveikin. Svo segir Wash- ingtonfrjett, að tekist hafi pró- fessor Soule yið Michigan-háskóla. og prófessor Kimberley við Wash- iugton háskólann að einangra Tæprasýkilinn, er veldur holdsveik- inni. Er búist við að þetta starf þeirra geti fengið mikla þýðingu fyrir varnir gegn veiki þessari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.