Morgunblaðið - 24.08.1916, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.08.1916, Blaðsíða 1
3. &rgangr. \Fimtudag 24. ágúst 1916 290. tðlnMsð Kitstjórnarbimi nr. 500: Ritstjór : VilhjAitnar Ftnsen :fsatok'arprentsmxðia j Afgreiðslnsimi nr, 500 Reykjavíknr Biograph-Theater Talstmi 475. Gðpt. Alvarez. Heimsfræg og afarspennnndi argantinsk æfintýri i 5 þáttum, leikin af Vitagraphs frægu leik- B urum í New York. J Meira spennandi og skemti- I legri mynd er varla hægt að útvega, því að hún er erlendis reiknuð etn af þeim allra beztu sem sýnd hefir verið. Allir ættu að sjá Capt. Alvarez á fjöruga hestinum sínum »Mephisto«. Aðg.m. kosta 60, 40 og 10 au. Kaupamann og kaupakonu vantar nú þegar það sem eftir er fieyskapartímans. Hátt kaup. R. v. á. K. F. U. M. Vinnan í kvöld. Ariðandi að allir mæti. Hér með tilkynnist að okkar hjart- kæra móðir og tengdamóðir, Guðný Helgadóttir, andaðist 17. ágúst. Jarð- arfðrin er ákveðin laugardaginn 26. þ. m. Húskveðjan byrjar kl. II1/* í- h- frá heimili hennar, Hverfisgötu 62. Börn og tengdabörn hinnar látnu. Innilegt hjartans þakklæti vottum við öllum sem heiðruðu útför Önnu Jónsdóttur frá Bollagörðum með nær- veru sinni. Börn og tengdabörn. Herbergi, snoturt, með sérinngangi, nálægt Miðbaenum, óskar stúlka eftir frá x. október. R. v. á. Slysið við hðfnina. Stúlkubarnið, sem varð undir járn- brautinni í fyrradag fyrir framan Sláturfélagshúsin, andaðist á spitalan- um snemma í gærmorgun. — Hafði barnið orðið fyrir miklu meiri áverka, en menn hugðu í fyrstu. Það misti ekki a‘5 eins ann- an fótinn, heldur urðu læknarnir að taka þá báða af, annan skamt fyrir neðan knéð en hinn um miðjan fótlegg. — Þar að auki lærbrotnaði barnið á tveim stöðum og hkut ýms önnur meiðsl. Það var nær óhugsandi, að það gæti lifað, enda andaðist það nokkru eftir að læknarnir höfðu bundið um það. Slys þetta er eitthvert hryliilegasta og sorglegasta, sem hér hefir borið við um langt skeið. Það hlýtur að fylla menn meðaumkun við foreldr- ana, sem mist hafa barnið sitt svo sviplega. — En það hlýtur líka að vekja menn til umhugsunar um hvort hér sé farið nm of óvarlega t. d. við hafnargerðina. Því verður ekki neitað, að slysin þar eru farin að verða nokkuð tíð, hverju sem um er að kenna. Það hafa oft heyrst raddir um það, að t. d. járnbrautin fari nokkuð hratt meðfram höfninni, þar sem umferð er mikil. Er það alveg ótækt ef svo er, ekki sízt þegar svo stendur á, að sjálf eimreiðin rekur marga vagna á undan sér. Þá er erfiðara fyrir formanninn að stöðva lestina í skyndi, ef eitthvað ber út af, og þá er ekki víst, að allir hafi gefið nægi- legan gaum að gufupípunni og merk- inu, sem gefið er. Slys geta ætíð borið að, og þau bera ætíð að, en það verður ekki nógsamlega brýnt fyrir mönnum að gæta sem mestrar varúðar, bæði þeim sem fara eiga með verkfærin og eins hinum, sem af einhverri til- viljun eru þar í nánd. Engum mun hægt að kenna þetta sorglega slys, sem leiddi barnið til bana. — En það má til að verða hvatning öllum að gera sitt ítrasta til þess að fyrirbyggja að slíkt komi fyrir aftur. H Leverpostei [J I */. oa */. pd. dðsum er *■« Utan af landi. Frá Stokkseyri. Stöðugir óþurkar fram til hins 13. þ. m. Þá létti upp og hefir verið himinbliða síðan. Voru komnar stórskemdir á heyjum, því fæstir ► Nýja Latneska Leyniskjalið. Stórfenglegur sjónleikur í 6 þáttum, 103 atriðum. Leikinn af hollenzkum leikendum. x. þáttur: Latneska skjalið. 4. þáttur: Hvernig hefna skal. 2. — Hjá borgarrústunum. 5. — Til hins nýja heims. 3. — I leit eftir glæpakvendi. 6. — Sigur réttvísinnar. Ef menn vilja sjá mynd sem er reglulega spennandi, þá gefst þeim hér alveg einstakt tækifæri til þess. Látið það ekki ónotað! Myndin stendur yfir hálfa aðra klukkustund. Aðgöngu- miðar kosta: kr. o.éo, 0.50 og 10 aura fyrir börn. „Tlvance moforinn“ tilbúinn af A/B. B. A. Hjorth & Co. Stockholm, stærstu mótorverksmiðju á Norðurlöndum sem veitir 500 manns árlega vinnu, hefir neðantalda kosti: Einföld gerð. Auðvelt að setja á stað. Auðvelt að passa. Auðvelt að setja niður. Engir ventilar í sprengiholinu. Þarf ekki að nota lampa eftir að vélin er sett á stað. Engin eldhætta. Úrvals efni og vönduð vinna. Léttur. Tekur lítið pláss. Abyggilegur og hefir vissan og jsfnan gang. Varahlutir fyrirliggjandi hjá umboðsmanni. Er allra mótorvéla oliusparastur. Eins árs ábyrgð. Af mótorverksmiðjum er verksmiðjan sú einasta sem nú getur afgreitt meö mánaöar fyrirvara. Umboðsmenn um alt land — Allar frekari upplýsingar gefur umboðsmaðurinn hér: Herra skipasmiður Eyólfur Gíslason, Vefturgöiu 34, og eru menn beðnir að snúa sér til hans með pantanir sínar. Aðalumboðsm. fyrir Island: S. Jóhannesson, Laugavegi 11. höfðu náð nokkrum bagga í garð í hinum neðri sveitum í Arnessýslu og Rangárvallasýslu. í efri sveitun- um var kominn einhver heyskapur. Menn hamast nú í að ná inn heyj- unum, því enginn þorir að treysta tíðinni. Mislingar eru nú að læðast hér um nágrennið; ekki hafa þeir þó drepið neinn enn þá. Fríkirkjupresturinn í Gaulverjabæ, sira Runólfur Runólfsson, er að búa sig af stað til Vesturheims, alfarinn. Mun fríkirkjusöfnuðurinn þá leysast upp, að því er kunnugir segja. Söfnuðurinn var stofnaður fyrir 6—7 árum og síra Runólfur Run- ólfsson jafnan verið presturinn. Sigl ng nokkur hérna i kauptún- inu undanfarna daga. Fiskilaust síðast er róið var. 9 A spítala Jósefs helga. Þjáður maður verður feginn, þeg- ar degi tekur að halla, ef hann væntir hvildar og veit, að eigi bætist and- vaka nótt ofan á svefnlausan dag. Klukkanidómkirkjuturninumslær 9. Kvöldið er blítt og yndislegt. Mildum húmfölva slær á hálfskýjað suðurloftið, og mjúkur blærinn hopp- ar inn um opinn gluggann og strýk- ur svalandi um andlit og hendur sjúklinganna, sem liggja i rúminu og geta ekki komið út til hans. Einstaka syngjandi fugl, sem áður flögraði um iðgræn túnin, er nú þagnaður, og náttúran býður góða nótt. — En mannlífsiðan ólgar úti fyrir eins og straumþung elfur í fjarska. Og niðurinn berst að hvílu sjúkl- ingsins og bægir svefninum frá. Þeir, sem létt eru haldnir, leggja eyrað við og hlusta á niðinn. Þarna er starfið og lifið, og leiðin opin og vegurinn frjáls hverjum manni. En sjúklingnum eru sundin lokuð og leiðin byrgð. Eins og bergnumið barn mænir hann og hlustar og þráir það, sem hann hafði átt, en hefir nú mist. Hann minnist horfinna æskustunda, þegar heilbrigðin svall í æðum* hans og hugurinn brann af löngun til starfa, — af löngun til þess að fást við grettistökin og ryðja þeim úr vegi, — af löngun til að vinna gagn og særndir landi og þjóð. En nú er stafurinn brotinn, og sjálf- ur liggur kann sem máttvana flak og öðrum til byrði. Hvers vegna hefir hönd örlaganna snert hann og lostið hann til jarðar, — hvers vegna hefir hann beðið ósigur meðan aðrir vinna ný vonalönd og velta steinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.