Norðurland

Tölublað

Norðurland - 15.11.1906, Blaðsíða 1

Norðurland - 15.11.1906, Blaðsíða 1
NORÐURLAND. Ritstjóri: Sigurður Hjörleifsson, læknir. 12. blað. Akureyri, 15. nóvember 1906. VI. ár. Avarp til Islendinga. Vegna þess hvernig stjórnmál íslands horfir nú við, höfum vér undirritaðir stjórnendur íslenzkra blaða komið oss saman um að veita fylgi vort til þess og styðja það, að ákveðin verði staða islands gagnvart Danmerkurríki sem hér segir: ísland skal vera frjálst sambandsland við Dan- mörk og skal með sambandslögum, er ísland tekur óháðan þátt í, kveðið á um það, hver málefni Íslands hljóti eftir ástœðum landsins að vera sameiginleg mál þess og ríkisins. — / öllum öðrum málum skulu Íslendingar vera einráðir með konungi um löggjöf sína og stjórn og verða þau mál ekki borin uppfyrir konungi í ríkisráði Dana. Á þessum grundvelli vijjum vér ganga að nýj- um lögum um réttarstöðu Islands, væntanlega með ráði fyrirhugaðrar millilandanefndar. En eins og vér álítum brýna nauðsyn til þess að blöð landsins láti nú almenning hér á landi vita, að vér viljum allir vinna saman að því, að búið verði með lögum um þannig lagaða réttar- stöðu íslands, eins er það sannfæring vor, að þeim málstað verði því greiðlegar sigurs auðið, þess eindregnar og almennar sem þjóð vor læt- ur í ljós samhuga fylgi sitt við þessa meginstefnu, hvar sem kemur til hennar kasta. Vér erum á þeim tímamótum, að eining vor út á við í þessu máli er skilyrði velferðar vorrar og þjóð- arsóma. Pví viljum vér skora á landsmenn að halda nú fast fram og ágreiningslaust þessum undirstöðu- atriðum væntanlegra nýrra sambandslaga. Löggjafarfulltrúar landsins hafa komið fram sem einn maður erlendis í þessu máli. Blöð ís- lands og opinberar raddir almennings þurfa og eiga að koma fram á sama hátt; treystum vér því, að þjóðin muni öll láta á sér finna, að hún vilji taka í sama streng með hverjum þeim hætti, sem henni veitist færi til að lýsa yfir skoðun sinni. Benedikt Sveinsson, Björn Jónsson, ritstjóri Ingólfs. ritstjóri ísafoldar. Einar Hjörleifsson, Hannes Þorsteinsson, ritstjóri Fjallkonunnar. ritstjóri Þjóðólfs. Sigurður Hjörleifsson, Skúli Thoroddsen, ritstjóri Norðurlands. ritstjóri Þjóðviljans. Ritnefndir Lögréttu og Norðra eru samþykkar ofanrituðu, nema hvað þeim virðist ekki ástæða til að gera nú þegar samtök til þess að halda að þjóðinni einni ákveðinni breytingu á stjórnarskránni, svo sem er afnám ríkisráðssetu ákvæðisins, en aftur vonaþær aðgetasýnt í verki samvinnufúsleik, einnig er kemur til breytinga á stjórnarskránni. Ritnefnd Lögréttu: Suðm. Björnsson. Jón J/lagnússon. Þórhallur Bjarnarson. Ritnefnd Norðra: Suðl. Suðmundsson. Jón Jónsson. Magnús Xrisfjánsson. Carl Höepfners verzlun á Akureyri mun framvegis sneiða hjá því, að hafa framhaldandi viðskifti — nema hönd selji hendi — við þá, sem alls ekki eða laklega hafa staðið í skilum við verzlunina tvö undanfarin ár, nema þá að sérstakar ástæður hafi orðið þess valdandi. — Sömuleiðis verð- ur framvegis ekki lánað félausum mönnum, eða mönnum sem ekki eru fullveðja. Þar á móti óskar verzlunin að hafa sanngjörn og frjálsleg við- skifti við alla, er að jafnaði verzla skuldlítið, og sem greiða skuldir sínar — ef nokkurar eru — í þeim vanalegu kauptíðum. Allur útlendur varningur fœst með mjög vægu verði. Flestar íslenzkar afurðir keyptar. Akureyri 1. nóvember 1906. KRISTJÁN SIGURÐSSON, verzlunarstjóri. Skarlatssóttin. Hún er alment að verða að áhyggju- efni manna hér í bæ, eins og vonlegt er. Hefir hún verið hér alllengi og útbreiðsla hennar fer vaxandi í stað þess að fara þverrandi. í októbermánuði voru tilfellin 7 hér í bænum á 4 heimilum og 2 annars staðar í læknishéraðinu á 2 heimilum, En það sem liðið er af þessum mán- uði er kunnugt um 9 sjúkdómstilfelli hér í bænum á 7 heimilum. Aftur hefir ekkert nýtt tilfelli verið tilkynt úr héraðinu, það sem af er mánuðin- um. Nokkuð af sjúklingunum hér hefir verið flutt á sóttvarnarhúsið og á 5 stöðum er hér enn ósótthreinsað eftir hana, auk sóttvarnarhússins. Ekki eru tölur þessar, sem hér hafa verið nefndar, svo háar að ástæða sé til að æðrast yfir. Hitt er miklu f- skyggilegra að telja má alveg víst að sýkin hafi verið miklu víðar, án þess aðvart hafi verið gert um það. Hér hefir á ekki fáum börnum geng- ið »hálsbólga« og má telja víst að mikið af henni, eða jafnvel alt, hafi verið skarlatssótt, því sýkin er væg á öllum þorra barnanna. Umtal hefir verið um það hér í bæ, að segja upp barnaskólanum og leitað hefir verið álits stjórnarráðsins um meðferð veikinnar. Héraðslæknir hefir lagt til að haldið sé áfram hinum sömu sóttvörnum og gert hefir verið að þessu, án þess lagt sé út í að stofna til stórfelds kostnaðar fyrir landssjóð og sam- kvæmt reglum þeim sem farið hefir verið eftir í seinni tíð með skarlats- sóttina, má búast við því að stjórnar- ráðið fallist á þá tillögu. Það er líka sannast að segja að mjög er það óvíst eða jafnvel ósenni- legt að strangari reglur kæmu að því haldi sem þyrfti. Beiti menn óvarkárni og óhlýðni, geta hinar ströngustu var- úðarreglur orðið til einskis gagns, þá um næma sjúkdóma er að ræða. þ>etta er og á að vera málefni bæj- arins. Aðalatriðið er það að fólk segi til strax, hvenær sem nokkur grunur er um skarlatssótt, en grunsama ber að telja alla hálsbólgu um þessar mundir og skýra lækni þegar frá. Sé þessa vandlega gætt er vonandi enn hægt að útrýma veikinni, en án þess verður það ekki gert. Hraðskeyti td Norðurlands. Reykjavík 14. nóv. Fundur var hér haldinn í gær- kvöldi fyrir forgöngu Odd-Fellowa hér, um stofnún allsherjarfélags til þess að berjast gegn berklaveikinni hér á landi. Mörg hundruð borgarar saman komnir. Ræður fluttu: Landlæknir Ouðm. Björnsson (aðalræðuna), Einar Hjör- leifsson, Ouðmundur Magnússon, Steingrímur Matthíasson, Jón Ólafs- son, Tryggvi Gunnarsson og Þór- hallur Bjarnarson. Samþykt að stofna allsherjar heilsu- hælisfélag. Skipulagsnefnd kosin: Klemens Jónsson formaður, Björn Jónsson skrifari, Sighvatur Bjarna- son féhirðir. Um 40 Odd-Fellowar hér hafa þegar gefið 1500 kr. Gert ráð fyrir að heilsubótarhæli kosti 120 þúsund, árskostnaður verði 30 — 40 þúsund og legukostnaður kr. 1,25 á dag. Stefnt að því að fá einn mann á hverju heimili með 2 kr. árstillagi, sem félaga. — Málinu tekið með miklum áhuga.

x

Norðurland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurland
https://timarit.is/publication/203

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.